Vilja skapa tækifæri fyrir fólk til að byggja upp líf sitt
Líkaminn geymir allt, áföll og ánægjustundir og þess vegna er nauðsynlegt að byggja upp líkamlega heilsu jafnframt andlegri. Í Hlaðgerðarkoti var til staðar lítil aðstaða fyrir líkamsrækt en þar mátti margt bæta. Emil Hreiðar Björnsson umsjónarmaður í Hlaðgerðarkoti hafði því samband við stjórnendur World Class og bað um aðstoð og það stóð ekki á þeim. Eigendur og stjórnendur World Class mættu á staðinn, skoðuðu aðstæður og innan tíðar var komin upp fyrirmyndar aðstaða. Emil og Birgitta Líf Björnsdóttir voru tekin tali um aðdragandann og árangurinn.
„Ég sendi ég póst á World Class með myndum af aðstöðunni okkar og spurði hvort þau hefðu áhuga á að hjálpa okkur með að umbreyta og endurbæta aðstöðu okkar fólks,“ segir Emil. „Þau tóku vel í það og eftir stutt samskipti ákváðu þau að koma og skoða áður en ákvörðun yrði tekin. Birgitta Líf kom síðan hingað, ásamt Birni föður sínum og eiganda World Class og bróður hans Sigurði. Þau skoðuð aðstöðuna og sáu að mörg tækjana voru mjög gömul og sum alveg ónýt. Nokkrum dögum eftir heimsóknina send Birgitta okkur skilaboð að þau vildu taka þátt í þessu með okkur, flota gólf, sparsla og mála veggi og endurnýja tækjabúnað. Nú er þessi æfingarstöð „Powerd by World Class“ að komast í gagnið og umbreytingin alveg svakalega flott.“
Og þá liggur beinast við að snúa sér að Birgittu Líf. Þið brugðust einstaklega vel við þegar til ykkar var leitað um að bæta aðstöðu til líkamsræktar í Hlaðgerðarkoti. Hvers vegna voruð þið strax tilbúin að aðstoða?
„Hjá World Class trúum við því að hreyfing og heilsa eigi að vera aðgengileg öllum,“ segir hún. „Í Hlaðgerðarkoti er verið að styðja fólk á mikilvægum tímamótum í lífi sínu og þess vegna fannst okkur sjálfsagt að leggja okkar af mörkum. Við sáum strax að með tiltölulega einföldum hætti væri hægt að bæta aðstöðuna sem gæti haft raunveruleg jákvæð áhrif á líðan og bata fólks. Það samræmist vel okkar gildum að styðja verkefni sem efla heilsu, sjálfstyrkingu og lífsgæði.“
Kynntu sér þarfirnar


Þið fóruð upp í Hlaðgerðarkot og skoðuðuð aðstæður og senduð síðan hugmyndir um hvað þið tölduð að þyrfti að gera og hvernig útbúa aðstöðu. Getur þú lýst því hvernig ferlið var?
„Við vildum byrja á því að skoða aðstæður á staðnum og fá góða mynd af húsnæðinu, markhópnum og því hvernig aðstaðan yrði nýtt. Í heimsókninni ræddum við við starfsfólk og kynntum okkur þarfirnar áður en við settum saman tillögu. Markmiðið var að útbúa einfalt, öruggt og fjölbreytt líkamsræktarsvæði sem hentaði fólki með mismunandi bakgrunn og getu. Við völdum búnað sem styður bæði styrktarþjálfun, þolþjálfun og almenna hreyfingu og lögðum áherslu á að aðstaðan yrði aðgengileg og auðveld í notkun.“
Telur þú að það skipti máli að geta stundað líkamsrækt þegar fólk glímir við veikindi?
„Já, við teljum það skipta mjög miklu máli. Rannsóknir sýna að regluleg hreyfing getur haft jákvæð áhrif bæði á líkamlega og andlega heilsu. Þegar fólk glímir við veikindi eða er í endurhæfingu getur hreyfing hjálpað til við að byggja upp styrk, bæta líðan, auka sjálfstraust og skapa jákvæða rútínu í daglegu lífi,“ segir hún.






World Class hefur áður sýnt Samhjálp mikinn velvilja meðal annars styrkt með happdrættisvinningum og fleiru. Er einhver sérstök ástæða fyrir að þið eruð tilbúin að leggja samtökunum lið?
„Samhjálp sinnir mikilvægu og verðmætu starfi fyrir samfélagið og hjálpar fólki sem oft stendur frammi fyrir stórum áskorunum. Við höfum í gegnum árin fylgst með því góða starfi sem þar er unnið og teljum mikilvægt að fyrirtæki taki þátt í að styrkja samfélagið sitt þegar tækifæri gefast. Fyrir okkur snýst þetta ekki eingöngu um líkamsrækt heldur um heilsu, vellíðan og að skapa fólki betri tækifæri til að byggja upp líf sitt. Við erum stolt af því að geta lagt okkar af mörkum til þess verkefnis,“ segir Birgitta Líf að lokum en heimilisfólk í Hlaðgerðarkoti er þegar farið að notfæra sér aðstöðuna til að byggja upp styrk, þol og sjálfstraust.




