Fréttir

Vildi gera eitthvað gott í tilefni sjötugsafmælisins

Við hjá Samhjálp verðum alltaf jafnglöð og þakklát þegar við verðum vör við að fólk er að hugsa til okkar. Fyrir rétt tæpum mánuði gekk Sigríður Ólafsdóttir inn á skrifstofuna til okkar og færði okkur handprjónaða vettlinga og húfur til að deila út meðal gesta Kaffistofunnar. Sigríður var þarna að slá nokkrar flugur í einu höggi, hún var að gera gott, nýta efnivið sem annars hefði farið til spillis og endurvekja áhuga sinn á prjónaskap.

Við slógum á þráðinn til Sigríðar til að heyra betur af þessu en hún var þá nýkomin til landsins frá Spáni. Hvers vegna var þér hugsað til Samhjálpar með þú áttir orðið til tilbúið prjónales?

„Ástæðan fyrir að ég fór að prjóna var að ég átti orðið svo mikið af garnafgöngum bæði frá mér og móður minni,“ segir hún. „Ég hugsaði með mér, ég verð að gera eitthvað við þetta og láta það nýtast einhverjum. Svo varð ég sjötug í byrjun janúar og langaði að gera eitthvað góðverk að því tilefni. Mig langaði að prjóna húfur og vettlinga í unglinga- og fullorðinsstærðum og á bæði konur og karla. Mér fannst Samhjálp vera einmitt þess háttar samtök, að sinna hvoru tveggja þannig að ég gaf mér hálft ár í þetta, byrjaði um síðustu áramót og afhenti ykkur þetta svo 18. ágúst síðastliðinn.“

Ertu mikil prjónakona? „Ég prjónaði töluvert þegar ég var ung bæði á sjálfa mig og syni mína en svo vann ég alltaf þannig vinnu að ég gat ekki notað axlirnar í mikið meira en hana. Ég fór svo að prjóna aftur ári eftir að ég hætti að vinna og er búin að vera prjóna núna í tvö ár. En ég hef aldrei áður prjónað svona mikið af húfum og vettlingum.“

Rifjaðist tæknin við prjónana sem sagt fljótt upp þegar þú byrjaðir aftur?

„Já, já, hún gerir það og svo hafði ég góða aðstoð ef ég lenti í vandræðum með að skilja uppskriftirnar,“ segir Sigríður. „Ég á systur sem prjónar mikið og ég gat hringt í hana.“

Ertu búin með afgangana sem þú ákvaðst að nýta til að láta gott af þér leiða?

„Nei, nei alls ekki,“ segir hún og hlær.

Getum við þá átt von á annarri heimsókn frá þér fljótlega?

„Það gæti bara vel verið,“ segir hún að lokum en við hjá Samhjálp ítrekum þakklæti okkar fyrir hlýhuginn og gjöfina sem Sigríður færði okkur.