Um Samhjálp

Samhjálp rekur meðferðarheimili fyrir 30 einstaklinga. Þrjú áfangahús og kaffistofu fyrir þá sem minna mega sín. Að staðaldri eru um 80 manns í langtímaúrræði á vegum Samhjálpar á hverjum degi.

Markmið Samhjálpar

Markmið Samhjálpar er að veita bjargir til þeirra einstaklinga sem halloka hafa farið í lífinu, vegna áfengis- og fíknisjúkdóms, fátæktar eða annarra samfélagslegra vandamála og með því stuðla að velferð og sjálfsbjörg þeirra.

Skrifstofa Samhjálpar er í Skútuvogi 1g, 104 Reykjavík en þar er einnig úthringiver til húsa. Samhjálp félagasamtök hafa starfað að góðgerðarmálum og hjálparstafi síðan 1973 og allan þann tíma staðið vaktina fyrir þá aðila sem minna mega sín og hafa átt við áfengis- og vímaefnavanda að stríða.

Úrræði á vegum Samhjálpar

  • Meðferðaheimilið Hlaðgerðarkot
  • Áfangahúsið Brú
  • Áfanga- og stuðningsheimili M18 og D27
  • Kaffistofan
  • Nytjamarkaður