Stórátak gegn fíknivanda
Aukinn slagkraftur fæst í allt meðferðarstarf í landinu með stofnun Samheldni. Samherji stendur að stofnun nýs átakssjóðs til að auka og bæta þjónustu fyrir fólk í fíknivanda. Forsvarsmenn fyrirtækisins telja fjárfestingu í meðferðarstarfi verulega ábótavant. Á heimsíðu Samherja er að finna upplýsingar um þennan nýja átakssjóðs sem fengið hefur nafnið Samheldni. Sjóðnum er ætlað að standa fyrir stórfelldu átaki í innviðafjárfestingum hjá þeim aðilum sem sinna meðferðarúrræðum fyrir fíknisjúka á Íslandi.
Samherji mun leggja fram 20 milljónir á ári á næstu fimm árum og stefnt er að því að fá atvinnulífið allt til liðs við verkefnið svo sjóðurinn geti úthlutað yfir 300 milljónum króna til þriggja bráðnauðsynlegra átaksverkefna. Meðal þeirra er njóta munu góðs af framlögum úr sjóðnum er Hlaðgerðarkot en það fé sem þangað verður veitt verður notað til að byggja smáhýsi á lóðinni. Það mun auka fjölbreytileika meðferðarúrræða og gera Samhjálp kleift að taka á móti fleiri aðilum í meðferð.
„Við vildum koma inn með myndarlegum hætti en því miður er þörfin svo gríðarleg að fleiri þurfa að leggjast á árarnar,“ segir Baldvin Þorsteinsson, forstjóri Samherja um ástæður þess að fyrirtækið ræðst í þetta þarfa verkefni.
„Í rekstri okkar höfum við í gegnum tíðina fundið hversu djúpstæð, hryggileg og eyðileggjandi fíknivandamál eru og reynt að bregðast við með því að leggja starfsfólki okkar og fjölskyldum þeirra lið þegar þau hafa lent í slíkum öngstrætum,“ segir Baldvin, þegar hann gerir grein fyrir því hvers vegna Samherji taki nú þetta frumkvæði. „Í nálægðinni við starfsfólkið finnum við hvað þessi mál eru átakanleg og hversu harkalega þau reyna á alla sem þeim tengjast. Við viljum nú gera þetta með formlegri og víðtækari hætti en við höfum gert hingað til og efna til sameiginlegs átaks til að takast hraustlega á við vandann. Við höfum góðar vonir um að við fáum breiðan almennan stuðning og öflug fyrirtæki og fólk í íslensku atvinnu- og þjóðlífi til þátttöku með loforðum um framlög næstu fimm árin,“ segir Baldvin enn fremur.
Þrjú stór verkefni þegar valin til að styrkja
Samheldni hefur þegar valið þrjú stór og afar mikilvæg verkefni sem munu njóta stuðnings úr sjóðnum með það að markmiði að gjörbreyta aðstöðu og þjónustu við fólk í fíknivanda:
SÁÁ – Stuðningur við fjölskyldur og ungmenni: Ráðist verður í að bæta verulega umgjörðina í kringum fjölskyldur þar sem börn eða ungmenni glíma við fíknivanda. Með betri umgjörð og skjótri aðstoð við fjölskyldur er hægt að hafa afgerandi og jákvæð áhrif á framtíð þessara ungmenna.
Hlaðgerðarkot – Smáhýsi til sjálfstæðrar búsetu: Bætt verður þjónusta við einstaklinga sem hafa misst, eða aldrei öðlast, getu til að búa sjálfstætt. Reist verða smáhýsi í landi Hlaðgerðarkots þar sem fólk sem lokið hefur meðferð getur flutt inn, haldið sitt heimili og fengið áframhaldandi stuðning frá meðferðarstöðinni áður en haldið er að fullu út í lífið. Við köllum þessi heimili Brú út í lífið.
Meðferðarheimilið Krýsuvík – Ný álma og 20 ný pláss: Reist verður ný álma við meðferðarheimilið sem fjölgar gistiplássum um 20 og er það veruleg stækkun. Sem stendur eru yfir 150 manns á biðlista eftir að komast að í meðferð í Krýsuvík.
Biskup Íslands er verndari Samheldni
„Ég fagna þessu framtaki og því hugarfari sem þar kemur fram. Ég og við öll hjá kirkjunni þekkjum alltof vel afleiðingar fíknisjúkdóma og mikilvægi meðferðarúrræða. Ég mun því gera það sem ég get til þess að leggja þessu framtaki lið,“ segir Guðrún Karls Helgudóttir biskup sem verður verndari Samheldni.
Við hjá Samhjálp fögnum framtaki Samherjamanna og vonumst til að fleiri fyrirtæki velji að leggjast á árar með þeim og efla á áhrifaríkan hátt meðferðarúrræði og stuðning við fólk í fíknivanda og fjölskyldna þeirra.




