Söngur og fótbolti í árlegri skötumessu
Hlaðgerðarkot hlaut góðan styrk að lokinni árlegri skötumessu að sumri í Gerðaskóla í Garði þann 15. júlí síðastliðinn. Nokkur hundruð manns sóttu viðburðinn sem haldinn var í átjánda sinn. Það var auðséð að skatan rann vel niður þótt sumum þætti hún ekki nægilega kæst. Aðrir kusu að borða saltfisk eða plokkfisk í þágu góðra málefna.

Undanúrslitaleikur HM í knattspyrnu var sama kvöld og gestum bauðst að horfa á leikinn á stórum skjá. Bræðurnir Baldur og Júlíus Guðmundssynir, synir Rúnars Júlíussonar fluttu tónlist og ræðumaður kvöldsins var Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra. Ráðherrann lauk ræðunni með því að taka lagið með gestum skötumessunnar og sýndi að röddin er í fínu formi.


Ásmundur Friðriksson hefur haft veg og vanda af skötumessunni frá upphafi og er ánægður með þann góða árangur sem náðst hefur. Í hverri messu hafa safnast á bilinu 6 til 8 milljónir króna sem renna ævinlega til styrktar fólki í alvarlegum vanda eða veikindum. Samhjálp hefur áður notið góðs af ágóða skötumessunnar og þeir peningar komið sér vel við uppbyggingu í Hlaðgerðarkoti.
Margir aðilar hafa í gegnum tíðina komið að og aðstoðað við að halda uppi þeirri þjóðlegu hefð að borða kæsta skötu og að þessu sinni voru oddfellowbræður hans í stúkunni Jóni forseta í Keflavík með honum og margir styrktaraðilar komu að framkvæmdinni þar á meðal Skólamatur, Fskmarkaður Suðurnesja, Icelandair Cargo og Suðurnesjabær. Ásmundur er einnig þakklátur bakhjörlum messunar fyrir þeirra aðstoð, en Icelandair, Brim og Verne eru þeir helstu. Vert er einnig að nefna að ekki væri hægt að bjóða upp á þetta séríslenska sælgæti sem skatan er án þeirra fiskvinnslufyrirtækja sem sjá veislunni fyrir um 130 til 140 kílóum af skötu.





