Notkunarskilmálar Samhjálpar
Hér má finna skilmála sem gilda um notkun vefsíðu Samhjálpar, meðferð efnis, hlekki á aðrar síður og reglur varðandi myndatökur.
Vinsamlegast athugið
Fjölmiðlar og myndatökur
Engum er heimilt að taka myndir né taka myndskeið undir neinum kringumstæðum í og við Kaffistofu Samhjálpar í Borgartúni 1a.
Fjölmiðlafólk er vinsamlegast beðið að virða bannið og sýna tillitssemi.
Vefsíðan
Öll notkun á upplýsingum og efni án leyfis er óleyfileg og getur brotið í bága við notkunarskilmála þessarar vefsíðu og lög um vernd á hugverki.
Ef slík ólögleg notkun kemur upp áskiljum við okkur rétt til að hefja lögsókn eða verja okkur með öðrum hætti án þess að tilkynna það sérstaklega fyrirfram.
Hlekkir á aðrar vefsíður
Þessi vefsíða gæti innihaldið hlekki á aðrar vefsíður. Við stjórnum hvorki né getum breytt upplýsingum, vörum eða innihaldi slíkra síðna.
Notkun þín á slíkum vefsíðum er á þína eigin ábyrgð.
Breyting á skilmálum
Við áskiljum okkur fullan rétt til að breyta þessum skilmálum hvenær sem er. Slíkar breytingar taka gildi um leið og textanum er breytt á vefsíðunni.
Áframhaldandi notkun þín á síðunni og aðgangur að henni er bundinn því að þú samþykkir breytta skilmála.
SAMHJÁLP
Spurningar um skilmála?
Hafðu samband við Samhjálp ef þú hefur spurningar um notkun vefsíðunnar eða efni hennar.