Fréttir

Skemmtilegt að sjá hvað líkaminn getur

Guðbjartur Elí Guðbjartsson er einn þeirra sem hafa ákveðið að hlaupa til styrktar Samhjálp í Reykjavíkurmaraþoninu í ár. Það val segir hann fyrst og fremst hafa ráðist af því að hjá Samhjálp sé að finna von um betra líf. Hann ætlar að hlaupaheilt maraþon og æfir nú af krafti.

Hvers vegna valdir þú að safna áheitum til styrktar Samhjálp í Reykjavíkurmaraþoninu í ár?

„Ég ákvað að hlaupa fyrir Samhjálp vegna þess að mér finnst þetta vera mjög mikilvægt málefni,“ segir hann. „Mér finnst mikilvægt að geta lagt mitt af mörkum til að hjálpa fólki að ná tökum á neyslu sinni og gefa því tækifæri til að byggja upp betra líf. Mér finnst líka mjög fallegt að geta sameinað krefjandi markmið fyrir sjálfa mig og góðan málstað.“

Hefur þú æft hlaup lengi?

„Ég hef ekki verið að æfa hlaup lengi, en síðustu tvo mánuði hef ég æft af alvöru krafti og lagt mikið á mig. Það hefur verið krefjandi en líka mjög skemmtilegt að sjá hvað líkaminn getur þegar maður ákveður bara að gefast ekki upp.“

Hvað ætlar þú að hlaupa langt?

„Ég ætla að hlaupa heilt maraþon, 42 km. Það er stórt markmið fyrir mig,“ segir hann.  

Söfnun áheita hefur gengið mjög vel og þú ert nánast búinn að ná söfnunarmarkmiðinu þínu. Hverju þakkar þú gott gengi?

„Ég vil fyrst og fremst þakka fjölskyldunni minni og vinum fyrir allan stuðninginn. Það hefur verið ótrúlega hvetjandi að sjá hvað margir hafa viljað styðja mig og Samhjálp. Ég hefði ekki komist svona langt án þeirra og er virkilega þakklátur fyrir það.“

Hvað er það, að þínu mati, sem hvetur fólk til að leggja hart að sér, fara út og hlaupa og styrkja góð málefni í leiðinni?

„Fyrir mér snýst þetta um að gera eitthvað sem er erfitt og skora á sjálfa sig. Ég held að það sé líka eitthvað sem heilli marga við þetta – að fara út fyrir þægindarammann sinn og gera eitthvað sem maður vissi ekki fyllilega hvort maður gæti. Þegar maður getur svo á sama tíma styrkt gott málefni og hjálpað öðrum verður þetta ennþá meira gefandi,“ segir Guðbjartur Elí að lokum.

Þennan frábæra hlaupara er hægt að styrkja með því að fara á slóðina: https://www.rmi.is/hlaupastyrkur/hlauparar/22392-gudbjartur-eli-gudbjartsson

Við hjá Samhjálp hvetjum alla sem geta til að fara inn á hlaupastyrkur.is og heita á hann eða aðra duglega hlaupara. Góðgerðafélögin í landinu munar um þá styrki sem þetta öfluga fólk aflar og fátt hvetur það meira en að finna meðbyrinn.