Almennt

Samhjálp – fyrirmyndarfyrirtæki árið 2026

Undanfarin ár hefur Samhjálp tekið þátt í könnun VR á fyrirtækjum ársins. Niðurstöður liggja nú fyrir og Samhjálp er meðal fimmtán efstu í stærðarflokknum meðalstór fyrirtæki. Við erum stolt og ánægð með þennan árangur og ætlum að halda áfram á þessari braut og gera enn betur.

Könnun VR mælir og spyr um stjórnun, launakjör, starfsanda, jafnrétti, starfsánægju auk annarra þátta er lúta að starfsaðstöðu og líðan starfsfólks. Heildareinkunn fyrirtækja er reiknuð út frá viðhorfi starfsfólks til ólíkra þátta starfsumhverfisins. Þau fyrirtæki sem skara fram úr í könnuninni hljóta formlega viðurkenningu og Samhjálp er þar á meðal.