top of page

Stundin nálgast



Haustið er komið og það þýðir að hið árlega Kótilettukvöld Samhjálpar nálgast. Við erum á fullu að setja saman áhugaverða dagskrá og gera allt þannig úr garði að gestir okkar geti notið kvöldsins. Við hvetjum ykkur til að vera með okkur í ár á Hilton Reykjavík Nordica þar sem kokkar úr kokkalandsliðinu elda dásamlegar kótilettur. Kvöldið verður fullt af skemmtilegri tónlist, happdrætti og öðrum óvæntum uppákomum.


Líkt og áður rennur allur ágóði til starfsemi Samhjálpar. Í rúma hálfa öld hefur Samhjálp staðið vörð um jaðarsetta hópa sem lifa við fátækt og félagslega einangrun, sem oft er afleiðing af langvarandi glímu við fíkn. Samhjálp rekur meðferðarheimilið Hlaðgerðarkot þar sem pláss er fyrir 30 einstaklinga í meðferð við fíknisjúkdómum, Kaffistofu Samhjálpar sem gefur um 100 þúsund máltíðir á ári, ásamt áfanga- og stuðningsheimilum í Reykjavík og Kópavogi.Athugið að þetta er áfengislaus viðburður: Húsið opnað kl. 18.30. Dagskráin hefst hefst kl 19.00 og stendur til 22.00. Miðasala hefst 20.september á tix.is

Comments


bottom of page