Persónuverndar stefna Samhjálpar

Samhjálp leggur áherslu á að meðferð persónuupplýsinga sé í samræmi við gildandi persónuverndarlöggjöf og að friðhelgi einstaklinga sé virt.

Almennt

Samhjálp, kt. 551173-0389, Skútuvogi 1 g, 104 Reykjavík, er annt um friðhelgi einstaklinga og tekur persónuvernd mjög alvarlega.

Samhjálp eru félagasamtök sem starfa í þágu samfélagsins. Samhjálp rekur meðferðarheimili, áfangaheimili, kaffistofu fyrir þá sem minna mega sín og aðra margþættaða starfsemi.

Í þessari persónuverndaryfirlýsingu má sjá hvaða persónuupplýsingum Samhjálp safnar, í hvaða tilgangi, hverjir geta fengið upplýsingar, hversu lengi þær eru geymdar og hvaða réttindi einstaklingar hafa.

Hvað eru persónuupplýsingar?

Með persónuupplýsingum er átt við allar upplýsingar sem hægt er að rekja til tiltekins einstaklings, svo sem nafn, kennitölu, heimilisfang, netfang, símanúmer, fjárhag, heilsufar, IP-tölu og fleira.

Með viðkvæmum persónuupplýsingum er átt við upplýsingar sem njóta sérstakrar verndar, svo sem upplýsingar um þjóðernisuppruna, stjórnmála- og trúarskoðanir, stéttarfélagsaðild, erfðagögn, heilsu, kynlíf eða kynhneigð.

Með vinnslu persónuupplýsinga er átt við alla meðferð og notkun persónuupplýsinga, svo sem söfnun, skráningu, varðveislu, breytingu eða eyðingu.

Hvernig vinnur Samhjálp persónuupplýsingar?

Hjá Samhjálp fer vinnsla persónuupplýsinga fram á lögmætum grundvelli og í samræmi við persónuverndarlög.

  • Persónuupplýsingar eru unnar með sanngjörnum hætti.
  • Persónuupplýsingum er einungis safnað í skýrum tilgangi.
  • Ekki er safnað meiri persónuupplýsingum en nauðsynlegt er.
  • Persónuupplýsingar eru nákvæmar og uppfærðar þegar þörf krefur.
  • Persónuupplýsingar eru ekki geymdar lengur en þörf er á.
  • Öryggi persónuupplýsinga er tryggt með viðeigandi varúðarráðstöfunum.

Sjálfvirk ákvarðanataka

Sjálfvirk ákvarðanataka er ferli þar sem ákvörðun er tekin með sjálfvirkum hætti án mannlegrar aðkomu, til dæmis með persónusniðum.

Ekki fer fram sjálfvirk ákvarðanataka við vinnslu persónuupplýsinga hjá Samhjálp.

Um hverja safnar Samhjálp persónuupplýsingum?

Samhjálp safnar ólíkum persónuupplýsingum um mismunandi hópa einstaklinga eftir því um hvaða starfsemi er að ræða. Undir öllum kringumstæðum leitast Samhjálp við að safna einungis þeim upplýsingum sem nauðsynlegar eru.

Í ákveðnum tilvikum þarf Samhjálp að safna viðkvæmum persónuupplýsingum, svo sem upplýsingum um heilsufar og stéttarfélagsaðild starfsfólks. Sérstök aðgát er höfð við meðferð slíkra upplýsinga.

Flokkar persónuupplýsinga

Starfsfólk og umsækjendur

  • Upplýsingar úr starfsumsókn
  • Upplýsingar úr ráðningarsamningi
  • Tímaskráning
  • Launagreiðslur
  • Orlof
  • Bankaupplýsingar
  • Skattaupplýsingar
  • Stéttarfélagsaðild
  • Heilsufarsupplýsingar
  • Starfsþróunarsamtöl

Viðskiptavinir og skjólstæðingar

  • Grunnupplýsingar
  • Tölvupóstsamskipti
  • Reikningaupplýsingar
  • Upplýsingar um þjónustu
  • Biðlistar
  • Skrá yfir skjólstæðinga
  • Verkefnastöðuupplýsingar
  • Upplýsingar um tjón

Dæmi um vinnslu

Tölvupóstsamskipti

Við notum tölvupóst til samskipta við samstarfsaðila, umsækjendur, viðsemjendur, meðferðaraðila og tengiliði.

Reikningagerð

Við söfnum grunnupplýsingum og reikningsupphæðum til að senda út reikninga og innheimta notendagjöld.

Viðskiptamannaskrá

Við höldum skrá yfir núverandi og fyrrverandi viðskiptavini og birgja ásamt viðskiptasögu.

Biðlistar og skjólstæðingar

Á meðferðarheimili og áfangaheimilum er haldið utan um skrá yfir skjólstæðinga og biðlista.

Tilgangur með söfnun persónuupplýsinga

  • Að efna samningsskyldu, til dæmis við starfsfólk.
  • Að veita viðeigandi þjónustu.
  • Að gæta lögmætra hagsmuna félagasamtakanna.
  • Að gæta lögmætra hagsmuna annarra.
  • Að uppfylla lagaskyldu.

Lagagrundvöllur vinnslu

  • Til að uppfylla lagaskyldu.
  • Til að uppfylla samningsskyldu.
  • Á grundvelli samþykkis einstaklinga.
  • Vegna verkefna í þágu almannahagsmuna eða beitingar opinbers valds.
  • Til að stofna, hafa uppi eða verja réttarkröfu.

Hve lengi geymir Samhjálp persónuupplýsingar?

Samhjálp geymir persónuupplýsingar einungis í þann tíma sem nauðsynlegt er fyrir samtökin að hafa þær undir höndum. Þegar ekki er lengur þörf á upplýsingunum er þeim eytt með öruggum hætti.

Frá hverjum safnar Samhjálp persónuupplýsingum?

Samhjálp safnar að meginstefnu til persónuupplýsingum beint frá þeim einstaklingum sem um ræðir. Samhjálp styðst einnig við opinberar skrár og upplýsingar frá stjórnvöldum þegar við á.

Miðlun til þriðju aðila

Samhjálp getur miðlað persónuupplýsingum til þriðju aðila sem eru ráðnir til að vinna fyrirfram ákveðna vinnu, svo sem þjónustuveitenda, gagnageymsluaðila og verktaka.

Í slíkum tilvikum er gerður vinnslusamningur sem kveður meðal annars á um skyldu viðkomandi aðila til að fylgja fyrirmælum Samhjálpar og tryggja öryggi upplýsinganna.

Samhjálp miðlar einnig upplýsingum til þriðju aðila þegar skylda krefur samkvæmt lögum.

Flutningur út fyrir Evrópska efnahagssvæðið

Samhjálp er kunnugt um að ströng skilyrði gilda um flutning persónuupplýsinga til ríkja utan Evrópska efnahagssvæðisins.

Slíkur flutningur fer ekki fram nema fullnægjandi heimild standi til þess samkvæmt lögum um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga nr. 90/2018.

Öryggi upplýsinganna

Samhjálp leitast við að grípa til viðeigandi tæknilegra og skipulegra öryggisráðstafana til að tryggja öryggi persónuupplýsinga.

Aðeins starfsfólk sem þarf aðgang að persónuupplýsingum starfs síns vegna hefur slíkan aðgang. Samhjálp stuðlar einnig að fræðslu og vitundarvakningu starfsfólks um öryggi persónuupplýsinga.

Réttindi einstaklinga

Einstaklingar geta átt rétt á að afturkalla samþykki sitt, fá upplýsingar um vinnslu, fá aðgang að gögnum, leiðrétta rangar eða villandi upplýsingar, óska eftir eyðingu upplýsinga, takmarka vinnslu og flytja eigin upplýsingar.

Réttindi einstaklinga eru þó ekki alltaf fortakslaus og kunna að vera háð skilyrðum samkvæmt lögum.

SAMSKIPTI

Persónuverndarfulltrúi

Hafi einstaklingar frekari spurningar um persónuverndaryfirlýsingu þessa geta þeir haft samband við persónuverndarfulltrúa.

Nafn Gunnhildur Erla Kristjánsdóttir
Heimilisfang Brúnavegi 13, 104 Reykjavík
Símanúmer 5 600 201