Fréttir

Ólögráða ungmenni kaupa áfengi á netinu

Í nýlegum fréttum á RUV kom fram að algengt er að ólögráða ungmenni kaupi áfengi af netverslunum. Viðmælandi RUV fullyrðir að þau þurfi aldrei að framvísa skilríkjum eða staðfesta að þau hafi aldur til áfengiskaupa. Samhjálp og fleiri aðilar hafa lengi varað við þessari þróun og varað við þeirri hættu sem felst í auknu aðgengi að áfengi. Að setja hömlur á verslun með vöru sem er hættuleg heilsu manna hefur ekkert með frelsi að gera en er viðleitni samfélags og ráðamanna til að setja lýðheilsu í forgang.

Starfsfólk Samhjálpar hefur langa reynslu af því að vinna með fólki sem glímir við fíknisjúkdóma og þekkir vel afleiðingar þeirra ekki bara fyrir þann sjúka heldur alla hans fjölskyldu og nærsamfélagið. Áfengi er stórskaðlegt vímuefni og vísindasamfélagið hefur margoft fært fram sönnur á hversu hættulegt það er heilsu manna sem og þau skaðsömu félaglegu áhrif sem það hefur. Ef þeirri þróun að gefa áfengissölu á netinu frjálsa mun það skapa alvarlegan og aukinn vanda í heilbrigðiskerfinu. Sýnt hefur verið fram á skýrt samhengi er milli aukinnar neyslu áfengis og álags á heilbrigðiskerfi víða um heim.

Áfengisauglýsingar eru bannaðar á Íslandi en netverslanir virða ekki bannið og hafa fundið ýmsar leiðir til að komast framhjá lögunum. En auglýsingar þjóna sama tilgangi að „normalísera“ eða staðla drykkju. Víða erlendis þar sem áfengisauglýsingar eru leyfðar er það mikið áhyggjuefni stjórnvalda hvernig auglýsendur einbeita sér að ungu fólki og sýna áfengi sem eðlilegan hluta daglegs lífs.

Emilie Scovill er bandarískur hjónabands- og fjölskylduráðgjafi sem nýlega lýsti því í viðtali við Lisu Keeley hjá vefnum Ria Health, hvernig áfengisframleiðendur hefðu undanfarna áratugi gert konur og ungmenni að sérstökum markhópi og reynt allt hvað þeirra geta að höfða til þeirra í auglýsingaherferðum sínum. Hún hefur um árabil hvatt stjórnvöld í heimalandi sínu til að setja skorður og skýrari reglur um hvað má og hvað ekki í auglýsingum af þessu tagi. Hún ásamt nokkrum kollegum sínum stendur fyrir herferðinni: #DontPinkMyDrink. Þar biðja þau konur að senda inn dæmi um auglýsingar þar sem drykkja kvenna er sýnd sem lúxus, glamúr, vináttu hvetjandi, valdeflandi og ánægjuleg. Tilgangurinn er að safna gögnum og sýna fram hvaða aðferðir fyrirtækin nota til að ná til þessa nýja markhóps. Hér á landi er þetta ekki síður áhyggjuefni vegna þess að herferðir sem höfða til ungs fólks fara ekki síst fram á netinu, á samfélagsmiðlum og öðrum síðum sem sóttar eru af ungu fólki. Sérstakt átak gegn unglingadrykkju hér á landi skilað gríðarlega góðum árangri og Íslend hefur oft verið tekið sem dæmi erlendis um hvernig snúa megi og breyta drykkjumenningu vegna þess. Nú bendir allt til þess að drykkja ungmenna sé að aukast að nýju og nýlega voru fluttar fréttir af því að landadrykkja væri að aukast meðal þessa hóps. Það má leiða að því sterkum líkum að normalísering drykkju í kvikmyndum, sjónvarpsþáttum og á netmiðlum er höfða til unglinga og ungmenna sé ein af ástæðum þess að þau hafa nú aukið áfengiskaup og neyslu.

https://www.ruv.is/frettir/innlent/2026-09-01-olograda-ungmenni-kaupa-afengi-i-netverslunum-fullt-af-krokkum-sem-gera-thetta-485781