Fréttir

Nýr forstöðumaður Hlaðgerðarkots ráðinn

Sigurður Smári Fossdal hefur verið ráðinn nýr forstöðumaður Hlaðgerðarkots. Hann tekur við af Signýju Guðbjartsdóttur sem hefur leitt starfið þar undanfarin tvö árþ. Sigurður Smári er ekki ókunnugur Samhjálp því hann hefur unnið í Hlaðgerðarkoti í 11 ár.

„Ég er þakklátur fyrir það traust sem mér hefur verið sýnt,“ segir hann. „Ég hóf störf hjá Samhjálp í Hlaðgerðarkoti í október 2015. Á þessum tíma hef ég gegnt ýmsum störfum, meðal annars sem ráðgjafi og umsjónarmaður. Frá árinu 2021 hef ég gegnt starfi dagskrárstjóra samhliða ráðgjafastörfum.

Sem dagskrárstjóri og ráðgjafi hef ég borið ábyrgð á skipulagi og framkvæmd meðferðarstarfsins, daglegri dagskrá, hópastarfi, einstaklingsviðtölum og eftirfylgd. Starfið hefur jafnframt falið í sér samstarf við fjölbreyttan hóp fagaðila og stofnana, meðal annars félagsþjónustur sveitarfélaga, fangelsismálayfirvöld og aðra samstarfsaðila.“

Sigurður Smári hefur lokið grunn- og framhaldsnámi við Ráðgjafaskóla Íslands og að auki tveimur diplóma-gráðum frá European Certification Board (ECB), önnur nefnist Addiction Professional og hin Alcohol & Drug Counselor.

„Í desember 2025 lauk ég jafnframt 300 klukkustunda námi í fíkniráðgjöf á vegum SÁÁ við Símenntun Háskólans á Akureyri,“ bætir hann við. „Námið uppfyllir menntunarþátt þeirra skilyrða sem gerð eru til áfengis- og vímuefnaráðgjafa samkvæmt íslenskri reglugerð.

Ég tek við starfi forstöðumanns með miklu þakklæti og virðingu fyrir því trausti sem mér hefur verið sýnt. Hlaðgerðarkot hefur verið stór hluti af mínu lífi undanfarin 11 ár og á þeim tíma hef ég fengið að starfa með öflugu fólki og taka þátt í mikilvægu starfi.

Það sem hefur haldið mér í þessu starfi öll þessi ár er ekki síst að fá að sjá fólk finna nýja von og taka skref í átt að breyttu lífi. Ég trúi því að hver einstaklingur eigi skilið að fá tækifæri til að byggja sig upp á ný og að árangurinn nái oft langt út fyrir einstaklinginn sjálfan, til fjölskyldu hans og nærumhverfis. Þess vegna skiptir mig máli að við veitum faglega þjónustu þar sem virðing, traust og mannleg nálgun eru í fyrirrúmi.

Ég horfi bjartsýnn til framtíðar og hlakka til að leiða starfið áfram í góðu samstarfi við samstarfsfólk mitt í Hlaðgerðarkoti og stjórnendur Samhjálpar. Fyrir mér skiptir miklu máli að hlúa að því góða starfi sem hefur verið byggt upp, styðja við samstarfsfólk mitt og halda áfram að þróa þjónustuna með þarfir þeirra sem til okkar leita að leiðarljósi.“

Við hjá Samhjálp þökkum Signýju hennar frábæra starf og óskum henni velfarnaðar í nýjum vettvangi og hlökkum til samstarfsins við nýjan forstöðumann sem þó er gamalkunngur.