Miði merktur þér
Kærleikurinn finnur margvíslegar leiðir að hjörtum mannanna. Starfsfólk Samhjálpar þekkir það og vinir okkar eru margir þótt við þekkjum þá ekki alla með nafni. Nýlega gekk kona inn á Kaffistofu Samhjálpar og rétti einum starfsmanni okkar umslag. Ofan í því var annað umslag og þar ofan í vegleg peningaupphæð. Á bæði umslögin voru skrifuð skilaboð og þegar farið var að lesa úr þeim varð úr þetta fallega bréf sem endar á ljóði sem gefandi hefur sennilega sjálfur samið.
Kæru velunnarar Samhjálpar,
Ég lenti í skrýtnu atviki þann 1. september 2025. Ég ætlaði á bænastund í kjallara í Hátúni 2 en komst að því þegar komið var á staðinn að engin slík hafði verið skipulögð. Enginn var þarna fyrir utan ein kona að ræsta niðri. Ég fór að tína upp miða sem lágu dreifir um allt við innganginn og í kjallaranaum og hún hjálpaði mér. Á miðana voru rituð orð Guðs. Veðrið var gott en þegar hún fór inn með miðana inn byrjaði að rigna en svo þurfti hún að flýta sér í strætó. Ég vissi ekki hvað þetta þýddi en núna veit ég það.
Táknið er að Guð mun varðveita alla sem sækja Kaffistofuna. Þetta var áður en vandamálið kom upp sem er verið að vinna í núna. Guð mun sjá um Kaffistofuna. Nú veit ég að þetta er tákn um að Guð þekkir ykkur öll, hvert og eitt ykkar. Orð Guðs til þín þetta voru um það bil 150 miðar og um það bil 150 manns sækja Kaffistofuna daglega. Það eru þið sem Guð sér um. Ég heiti á Guð sem föður, föðurkærleikann, í kvæðinu er móðir eins og viskan í orðskviðunum. Jesús er frelsarinn og bróðir líka.
Miði merktur þér
Miði er merktur þér
því að þú merkilegt ert.
Mikilvæ og margþætt er
ert þú manneskja mér.
Þú ert ei gleymdur Guði
sem geymir þig í hjarta sér.
Gimsteinn á götuslóð
því Guð þig alltaf sér.
Saga þín er eins og saga mín
sem er til í lífsins bók,
sem himinn á og er skráin mín
það sem reynslan er í ævinnar bók.
Jesús okkar vinur er (sannur)
og hann er sannarlega bróðir.
Hann er ætíð með þér,
líka sem faðir og móðir.
Við erum djúpt snortin og einlæglega þakklát þessari konu fyrir að tína upp Guðs orð, taka við því og skilja það. Ef þú, kæri gefandi vilt gera vart þig mundum við gjarnan vilja þakka þér persónulega fyrir framlagið. Ef ekki virðum við nafnleyndina.





