Markmið

Markmið Samhjálpar er að veita bjargir til þeirra einstaklinga sem halloka hafa farið í lífinu, vegna áfengis- og fíknisjúkdóms, fátæktar eða annarra samfélagslegra vandamála og með því stuðla að velferð og sjálfsbjörg þeirra. 
 Samhjálp félagasamtök hafa starfað að góðgerðarmálum og hjálparstafi síðan árið 1973 og hafa frá upphafi staðið vaktina fyrir þá aðila sem minna mega sín og hafa átt við áfengis- og vímaefnavanda að stríða. Skrifstofa Samhjálpar er að Skútuvogi 1g, 104 Reykjavík en þar er einnig úthringiver til húsa.
Samhjálp rekur elsta starfandi meðferðarheimili á landinu að Hlaðgerðarkoti í Mosfellsdal ásamt tveimur áfangaheimilum í Reykjavík og einu í Kópavogi. Að staðaldri eru um 80 manns í langtímaúrræði á vegum Samhjálpar á hverjum degi auk þess sem allt að 200 máltíðir eru framreiddar daglega í Kaffistofu Samhjálpar allan ársins hring.

Úrræði í boði

  • Meðferðaheimilið Hlaðgerðarkot
  • Áfangaheimilið Brú
  • Áfanga- og stuðningsbýlin M18 og D27
  • Kaffistofa Samhjálpar