Lykill færir bílinn alfarið til Samhjálpar
Lykill fjármögnun lét Samhjálp í té nýja Renault Traffic háþekju frá bílaumboðinu BL ehf. fyrir tíu árum. Síðan þá hefur bíllinn verið ómissandi í starfi Kaffistofunnar sem og annarri starfsemi Samhjálpar. Á sínum tíma sögðust forsvarsmenn Lýsingar sem Lykill er hluti af vilja á þennan hátt styðja við bakið á starfsemi Samhjálpar sem þeir höfðu um árabil styrkt með öðrum hætti. Nú hefur bíllinn endanlega verið afhentur Samhjálp til eignar.
Upphaflegi samningurinn hljóðaði upp á að Lykill veitti Samhjálp grundvallarþjónustu við rekstur bifreiðarinnar í samræmi við flotaleigusamninga fyrirtækisins og Atlantsolía og Löður styrktu samtökin við að reka bifreiðina. Allan þennan tíma hefur bíllinn létt mjög undir með öllu starfi samtakanna og nýst okkur til að hjálpa þeim sem eru þurfandi og mega sín minna í þjóðfélaginu og mun gera áfram. Starfsfólk Samhjálpar þakkar forsvarsmönnum Lykils fyrir hlýjan hug og vináttu við Samhjálp.




