Langar að styðja þá sem minnst mega sín
Júlíus Eyvindsson hefur alltaf haft áhuga á íþróttum en fékk „hlaupabóluna“ í fyrrasumar. Hann ætlar að hlaupa hálft maraþon í Reykjavíkurmaraþoninu í ágúst og er bjartsýnn á að allt gangi vel þótt undirbúningurinn hafi gengið svolítið brösuglega til að byrja með. Júlíus safnar áheitum fyrir Samhjálp.
Hvers vegna ákvaðstu að safna til styrktar Samhjálp?
„Mér finnst Samhjálp vinna gríðarlega gott starf fyrir þá sem minna mega sín,“ segir hann. „Heimilislaust fólk, þeir sem glíma við áfengis- og fíkniefnavanda og aðrir jaðarhópar eru líka menn. Það ríkja rosalega miklir fordómar í samfélaginu gagnvart þessum hópi. Samhjálp gefur þeim að borða og samtökin reka líka Hlaðgerðarkot. Ég er sjálfur óvirkur alkóhólisti og mér finnst þetta svo frábært og óeigingjarnt starf. Auk þess get ég sagt að ég hef búið niðri í miðbæ næstum allt mitt líf og hef því fylgst með fólki sem er heimilislaust og treystir á neyðarskýlin, því fólki samtökin hjálpa. Sjálfur tók ég þátt í Grettistaki, úrræði á vegum Reykjavíkurborgar, og við vorum í húsnæði við hliðina á Kaffistofu Samhjálpar og ég varð aldrei var við vandamál tengd starfsseminni þar.
Mér fannst því hvernig spilaðist úr spilunum hvað varðar flutning Kaffistofunnar inn á Grensásveg ákaflega sorglegt. Ég þekki sjálfur hvernig úrræði eins og þessi hafa gengið niðri í bæ og veit að þetta hefur alltaf verið í lagi. Í miðbænum er úrræði út um allt. Ég get nefnt að við Njálsgötu er úrræði fyrir veika einstaklinga með vímuefnavanda og það er leikskóli við hliðina. Ég veit að það gengur bara vel.“
Ertu búinn að hlaupa lengi?
„Nei, ég hljóp aðeins síðasta sumar og fékk þá hlaupabóluna,“ segir hann og hlær.
Hvernig gengur undirbúningurinn?
„Hann gengur svolítið brösuglega en gengur. Ég hef talsverðan áhuga á íþróttum og ég ætla að reyna að ná góðum tíma líka. Ég hef alltaf stundað hreyfingu og rosalega mikið í líkamsrækt. Ég veit hvað í mér býr og er núna að byrja að taka alvöruvegalengdir. Hingað til hef ég mest verið í stuttum hlaupum. Ég ætla að taka hálft maraþon og maður þarf að æfa sig fyrir þá vegalengd.“
Júlíus veit að andlega hliðin leikur stórt hlutverk í langhlaupum og að þess vegna skiptir máli að velja sér góðgerðarstarf sem maður brennur fyrir. Það að vita að tekist hafi að leggja hönd á plóg skilar fólki áfram þegar þreytan fer að segja til sín. Við hjá Samhjálp erum ávallt óskaplega þakklát því frábæra fólki sem kýs að leggja okkur lið á þennan hátt. Þess má geta að hlaupastyrkirnir frá í fyrra nægðu til að hægt var að ráðast í viðgerðir og uppbyggingu umhverfis Hlaðgerðarkot og þar er nú skemmtileg útiaðstaða fyrir þá sem þar dvelja að njóta.
Hér er hægt að heita á Júlíus og styrkja Samhjálp: https://www.rmi.is/hlaupastyrkur/hlauparar/21788-julius-eyvindsson




