Kynning fyrir fyrirtæki
Í rúma hálfa öld hefur Samhjálp staðið vörð um jaðarsetta hópa sem lifa við fátækt, félagslega einangrun og afleiðingar langvarandi glímu við fíkn.
Hjálpaðu okkur að hjálpa öðrum
Kynning fyrir fyrirtæki, stofnanir og vinnustaði sem vilja kynnast starfi Samhjálpar og samfélagslegum áhrifum þess.
Samhjálp rekur meðferðarheimilið Hlaðgerðarkot, Kaffistofu Samhjálpar ásamt áfanga- og stuðningsheimilum í Reykjavík og Kópavogi. Nú bjóðum við upp á kynningar þar sem farið er yfir starf samtakanna, reynslusögur og leiðir fyrir vinnustaði til að taka þátt.
01
Í kynningunni verður farið yfir
- Sögu, verkefni og þjónustu Samhjálpar
- Vitnisburði frá einstaklingum sem hafa notið góðs af starfseminni
- Tækifæri fyrir fyrirtæki og starfsfólk til að taka þátt
- Sjálfboðaliðastarf, styrki og samstarfsverkefni
- Spurningar, svör og umræður í lok kynningar
02
Markmið kynningarinnar
- Veita starfsfólki innblástur
- Ýta undir samfélagslega ábyrgð
- Auka þátttöku starfsfólks
- Styrkja samfélagstengsl
BÓKUN
Hvernig er hægt að panta?
Sendu okkur línu eða hringdu
Auðvelt er að bóka kynningu hjá Samhjálp. Hafðu samband til að skipuleggja tíma sem hentar þínum vinnustað best.