Heitur matur og stuðningur alla daga ársins
Kaffistofa Samhjálpar er fyrir fólk sem býr við erfiðar félagslegar aðstæður, sárafátækt og jafnvel heimilisleysi.
Lyngháls 3
Beinn sími: 854-8307
Vörumóttaka. Tekið er við matargjöfum alla virka daga frá 08:00 – 14:00.
Hátún 2
Fíladelfía Kirkjan
Matsalurinn er tímabundið til húsa hjá Fíladelfíu kirkjunni. Opið er alla daga ársins frá 08:00 – 14:00.
Kaffistofa Samhjálpar
Kaffistofa Samhjálpar er fyrir fólk sem býr við erfiðar félagslegar aðstæður, sárafátækt og jafnvel heimilisleysi. Starfsemi Kaffistofunnar er ætluð þeim sem eru í neyð og hafa ekki tök á að sjá sér fyrir mat sjálfir.
Athugið að Kaffistofa Samhjálpar er aðallega hugsuð fyrir þá sem eru lögráða, náð hafa 18 ára aldri, þar sem ekki er gert ráð fyrir því að börn yngri en 18 ára búi við þær aðstæður að þurfa á þjónustu Kaffistofunnar að halda. Rétt er að taka fram að engum er vísað frá, sem telur sig þurfa á þjónustu Kaffistofu Samhjálpar að halda.
Alltaf heitt á könnunni
Á Kaffistofu Samhjálpar er alltaf heitt á könnunni. Gestum býðst morgunkaffi ásamt meðlæti strax við opnun. Heit máltíð er framreidd um hádegisbilið og er heitur matur á boðstólum fram að lokun.
Á hátíðis- og tyllidögum er hátíðarmatur í boði á Kaffistofu Samhjálpar. Um og yfir 100 þúsund máltíðir eru gefnar á Kaffistofunni á hverju ári.
Saga Kaffistofunnar
Kaffistofa Samhjálpar var opnuð árið 1981 en hafði þá bækistöðvar við Hverfisgötu í Reykjavík. Seinna fluttist Kaffistofan í Borgartúnið þar sem hún hefur verið um árabil eða til október 2025.
Tímabundið fengum við inni í Hátúni 2, á neðri hæð Fíladelfíu kirkju, þar til hún flytur á Grensásveg 46 um mitt ár 2026.
Þörfin er stöðug
Það er stöðug aðsókn á Kaffistofu Samhjálpar og margir sem þurfa á stuðningi að halda. Til okkar leitar umkomulaust og fátækt fólk, ýmist vegna líkamlegra eða andlegra veikinda eða félagslegrar einangrunar.
Öll eiga þau það sameiginlegt að búa við fjárhagslegar áskoranir ásamt því sem margir upplifa félagslega útskúfun.
Það er okkur hjá Samhjálp mikill heiður að geta gefið gestum Kaffistofunnar að borða á hverjum degi – allan ársins hring. Þetta getum við gert með hjálp fjölda einstaklinga og fyrirtækja sem styrkja starfið í hverjum mánuði með fjárframlagi og matargjöfum. Fyrir þetta erum við afar þakklát.
Kaffistofa Samhjálpar
Kaffistofa Samhjálpar skiptist í tvo þjónustuhluta:
Eldhúsið – Lyngháls 3 – Beinn sími 854-8307
Vörumóttaka, tekið er við matargjöfum alla virka daga frá kl 08:00 – 14:00
Matsalur – Hátún 2 – (Fíladelfíða Kirkjan)
Matsalurinn er tímabundið til húsa hjá Fíladelfíu kirkjunni
Opið er alla daga ársins frá kl 10:00 – 14:00
Starfsemi Kaffistofunnar er ætluð þeim sem eru í neyð og hafa ekki tök á að sjá sér fyrir mat sjálfir.
Aldurstakmark
Opnunarár
Máltíðir árlega

Kaffistofa Samhjálpar er fyrir fólk sem býr við erfiðar félagslegar aðstæður, sárafátækt og jafnvel heimilisleysi. Starfsemi Kaffistofunnar er ætluð þeim sem eru í neyð og hafa ekki tök á að sjá sér fyrir mat sjálfir. Athugið að Kaffistofa Samhjálpar er aðallega hugsuð fyrir þá sem eru lögráða, náð hafa 18 ára aldri, þar sem ekki er gert ráð fyrir því að börn yngri en 18 ára búi við þær aðstæður að þurfa á þjónustu Kaffistofunnar að halda. Rétt er að taka fram að engum er vísað frá, sem telur sig þurfa á þjónustu Kaffistofu Samhjálpar að halda,
Á Kaffistofu Samhjálpar er alltaf heitt á könnunni. Gestum býðst morgunkaffi ásamt meðlæti strax við opnun. Heit máltíð er framreidd um hádegisbilið og er heitur matur á boðstólum fram að lokun.
Á hátíðis- og tyllidögum er hátíðarmatur í boði á Kaffistofu Samhjálpar.
Um og yfir 100 þúsund máltíðir eru gefnar á Kaffistofunni á hverju ári.
Kaffistofa Samhjálpar var opnuð árið 1981 en hafði þá bækistöðvar við Hverfisgötu í Reykjavík. Seinna fluttist Kaffistofan í Borgartúnið þar sem hún hefur verið um árabil eða til október 2025. Tímabundið fengum við inn í Hátúni 2, á neðri hæð Fíladelfíu kirkju þar til hún flytur svo á Grensásveg 46 um mitt ár 2026.
Það er stöðug aðsókn á Kaffistofu Samhjálpar og margir sem þurfa á stuðningi að halda.
Til okkar leitar umkomulaust og fátækt fólk, ýmist vegna líkamlegra eða andlegra veikinda eða félagslegrar einangrunar. Öll eiga þau það sameiginlegt að búa við fjárhagslegar áskoranir ásamt því sem margir upplifa félagslega útskúfun.
Það er okkur hjá Samhjálp mikill heiður að geta gefið gestum Kaffistofunnar að borða á hverjum degi – allan ársins hring. Þetta getum við gert með hjálp fjölda einstaklinga og fyrirtækja sem styrkja starfið í hverjum mánuði með fjárframlagi og matargjöfum. Fyrir þetta erum við afar þakklát.