Fréttir

Hve lengi fær freki karlinn að vaða uppi?

Sigurður Ingi Jóhannsson þingmaður Framsónarflokksins var í viðtali í kvöldfréttum Sýnar í gærkvöldi. Þar sagði hann óskiljanlegt að netsala áfengis þenjist og viðgangist þrátt fyrir að fallinn sé dómur um að hún sé ólögleg. Hann kallaði einnig eftir því að starfsemin verði stöðvuð strax og að ríkisstjórnin tali skýrt í málinu og talaði jafnframt um að málið væri ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur til vansa.

Samhjálp og fleiri félagasamtök er þekkja skaðsemi áfengis hafa lengi barist gegn þeirri þróun að smásala á áfengi tíðkist og leyfist einkaaðilum hér á landi þrátt fyrir að löggjöfin kveði skýrt á um að hún sé eingöngu heimil íslenska ríkinu. Frá árinu 2020 hefur netverslunum með áfengi fjölgað og þær auglýsa einnig opinberlega starfsemi sína þrátt fyrir að áfengisauglýsingar séu bannaðar með lögum. Í dag eru tuttugu fyrirtæki starfandi er selja áfengi á netinu til einstaklinga. Í apríl síðastliðinn féll dómur í Héraðsdómi Reykjaness um að áfengissala eins þessara fyrirtækja, eða Smáríkisins, væri smásala og brot á einkaleyfi ÁTVR til smásölu áfengis á Íslandi.

Áður hafa fallið svipaðir dómar í Svíþjóð þar sem ríkið hefur einnig einkaleyfi á smásölu áfengis. Þetta er mikilvægur liður í forvarnarstarfsemi og Landlæknisembættið, SÁÁ og fleiri aðilar lagt ríka áherslu á að allar rannsóknir sýni að þetta sé mikilvægur liður í forvörnum gegn fíknisjúkdómum og alls staðar þar sem slakað sé á löggjöf þessa efnis aukist neysla og í kjölfarið aukist til muna álag á heilbrigðis-  og félagskerfi.

Mörgum finnst lögregla hingað til að hafa lítið sinnt þessum málum þrátt fyrir viðleitni manna á borð við Árna Guðmundsson formann Foreldrasamtaka gegn áfengisauglýsingum. Hann m.a. kærði sjálfan sig fyrir áfengiskaup. Í raun er óskiljanlegt að starfsemi af þessu tagi hafi fengið að þrífast og vaxa óáreitt og verða svo yfirgripsmikil sem raun ber vitni. Nú er svo komið að það væri meiriháttar lögregluaðgerð að fara í og uppræta allar þessar verslanir en að mati allra er vinna að fíkniforvörnum þess virði.