Fréttir

Hleypur í minningu dóttursonar síns

Loftur Jóhannsson hefur í gegnum tíðina skokkað fremur en hlaupið að eigin sögn en ætlar engu að síður að hlaupa 10 km fyrir Samhjálp í Reykjavíkurmaraþoninu í ár. Loftur hleypur ekki hvað síst í minningu dóttursonar síns sem glímdi við einhverfu og alvarlega kvíðaröskun frá unga aldri. Sá vandi varð þess síðar valdandi að fíkn náði tökum á honum, og að lokum kostaði hún hann lífið.

Loftur er kominn á eftirlaun en starfaði við flugumferðarstjórn og margir muna eftir honum sem andliti flugumferðarstjóra í kjarabaráttu þeirra þegar hann gengdi formennsku í Félagi íslenskra flugumferðarstjóra. Hvers vegna valdi hann að styrkja Samhjálp eftir að hann ákvað að hlaupa í Reykjavíkurmaraþoninu í ár?

„Í fyrsta lagi vegna þess að dóttursonur minn, Sölvi Guðmundsson, var vegna veikinda sinna var kominn á götuna,“ segir hann. „Eitt sinn hringdi hann í mig, eftir að hann hafði fengið að gista hjá lögreglunni, og bað mig að koma og hitta sig niðri í bæ. Ég fór þangað og fór með hann inn á Kaffistofuna til ykkar. Þangað hafði hann þá aldrei komið áður. Ung stúlka tók mjög vel á móti okkur og kom Sölva í framhaldinu í samband við VOR-teymið, það ágæta fólk. Síðan fór Sölvi oft í mat á Kaffistofunni.“

Tókst Sölva að ná sér af sínum sjúkdómi? „Nei, hann er dáinn. Hann var í ágætis athvarfi hjá Klettabæ á vegum félagsþjónustunnar í Reykjavík en um tvítugt var honum vísað þaðan út og á götuna. Hann var dáinn rúmu ári síðar.“

Saga Sölva er ekki einsdæmi, því miður. Fíknisjúkdómar eru illviðráðanlegir og lífshættulegir. En er afi hans ofurhlaupari?

„Nei, ég er alls enginn ofurhlaupari,“ svarar Loftur og hlær við. „Ég hef þó verið að hlaupa alla ævina eitthvað, ég vil þó frekar kalla það skokk. Undanfarin ár hefur það raunar verið meira labb en skokk. En ég ætla að reyna þetta og komast 10 km.“

Ertu búinn að undirbúa þig lengi? „Ég er búinn að skokka aðeins, jú, jú og held að ég komist þessa 10 km.“

Hlakkar þú til að hlaupa af stað í Reykjavíkurmaraþoninu? „Já, já en maður getur ekki kallað þetta maraþon, þetta er ekki meira en 10 km. En sú vegalengd tekur samt á.“

Þennan frábæra hlaupara er hægt að styrkja á slóðinni: https://www.rmi.is/hlaupastyrkur/hlauparar/22199-loftur-johannsson

Starfsfólk Samhjálpar hvetur alla sem geta til að velja sér hlaupara í Reykjavíkurmaraþoninu og heita á hann. Ekkert hvetur þetta duglega fólk meira áfram en að finna meðbyrinn. Það fé sem safnast nýtist vel til að byggja upp betra mannlíf á Íslandi. Í fyrra var styrkurinn úr Reykjavíkurmarþoni Íslandsbanka nýttur til að byggja upp fallega útiaðstöðu fyrir heimilisfólk í Hlaðgerðarkoti.