Meðferð í Hlaðgerðarkoti

Í Hlaðgerðarkoti í Mosfellsdal er boðið upp á 12 vikna meðferð við fíknisjúkdómum. Meðferðin byggir á sporunum 12, með kristilegum gildum og þverfaglegri nálgun.

9

rými fyrir konur

22

rými fyrir karla

12

vikna meðferð

12

spora hugmyndafræði

Hugmyndafræði meðferðarinnar

Grunnhugmyndafræðin kemur frá Minnesota meðferðarmódelinu, en meðferðin í Hlaðgerðarkoti spannar 12 vikur. Hún byggir á 12 spora meðferð, kristilegum gildum, jafningjafræðslu og stuðningi.

Sérstök áhersla er lögð á að taka tillit til áfallasögu skjólstæðinga og að viðeigandi aðstoð sé veitt þegar jafnvægi hefur náðst í meðferð.

Einstaklingsmiðuð og þverfagleg nálgun

Í meðferðinni er unnið með sálfélagslega, félagslega og samfélagslega þætti. Áhersla er lögð á æsku, uppeldi, áföll, félagsleg vandamál, sálrænan vanda, sjálfsvinnu og virka þátttöku hvers einstaklings.

Umhverfið er heimilislegt og afslappað án stofnanalegs yfirbragðs. Sami ráðgjafi fylgir einstaklingnum í gegnum meðferðina til að byggja upp traust og meðferðarheldni.

Gagnreyndar aðferðir

TSF

Twelve-Step Facilitation Therapy

Group Therapy

Hópmeðferð og jafningjastuðningur

TIC

Trauma Informed Care

CBT

Cognitive Behavioral Therapy

MI

Motivational Interviewing

PRS

Peer Recovery Support

Gæði meðferðar

Gæðavísar eru til staðar út frá viðmiðum Landlæknis og almennum gæðaviðmiðum í heilbrigðisþjónustu. Gæði eru meðal annars metin með þjónustukönnunum, gæðavísum, málaskráningu og atvikaskráningu.

Mat á árangri meðferðar

Hlaðgerðarkot tekur þátt í 4 ára rannsókn á bataauði undir umsjón Erlu Bjargar Sigurðardóttur, lektors við Háskóla Íslands. Markmiðið er að kortleggja bataauð og bakgrunnsupplýsingar einstaklinga í meðferð yfir fjögurra ára tímabil.

Samstarfsaðilar

Hlaðgerðarkot er í samstarfi við Fangelsismálastofnun, Landspítala, barnavernd, Bjarkarhlíð, Kvennaathvarfið og Stígamót. Með þessu er hægt að styðja einstaklinga með fjölþættan vanda og bjóða upp á viðeigandi úrræði á meðferðartíma.