Heimildamyndin Hlemmur sýnd í Bíó Paradís
Heimildamyndin Hlemmur verður sýnd í Bíó Paradís þann 4. október næstkomandi kl. 15. Það er Ólafur Sveinsson sem er höfundur og leikstjóri myndarinnar. Margir muna þær umræður sem spunnust þegar myndin var frumsýnd árið 2002. Mörgum brá við að sjá svart á hvítu raunveruleika þeirra sem glíma við heimilisleysi og margvíslegan heilsufarsvanda og hvernig búið er að þeim í samfélaginu. Sýning myndarinnar nú er áhugaverð ekki hvað síst til samburðar við hvernig og hvort aðstæður þessa hóps hafi breyst.

Á Hlemmi hafði myndast athvarf þeirra er lent höfðu á jaðri samfélagsins og þar mættust ólíkar manneskjur er glímdu við margs konar vanda. Myndin var áhrifamikil og hreyfði sannarlega við fólki, enda sýndi hún líf einstaklinga, baráttu þeirra við að halda reisn við erfiðar aðstæður, vináttu, stuðning, einmanaleika, sorg, sjálfsásökun og söknuð. Lífsbaráttan er hörð í þessum aðstæðum en Ólafi tókst engu að síður að draga upp mynd af hlýju og kímni í samskiptum manna í milli. Hljómsveitin Sigur Rós sá um tónlistina í myndinni en hún hlaut meðal annars Edduverðlaun sem besta heimildarmyndin og fyrir bestu tónlist.
Ólafur vinnur nú að heimildamynd um starf Samhjálpar og verður sýnt stutt myndbrot úr þeirri heimildamynd etir sýninguna á Hlemmi.
Sýningin er á vegum Bíóteksins, sem er nýtt samstarf Bíó Paradís og Kvikmyndasafns Íslands um reglulegar sýningar á íslenskum sígildum kvikmyndum.




