Fréttir

Góður matur í frábærum félagsskap

Tíminn flýgur og haustið læðist að og ef á þig sækir haustdrungi er vert að muna að í október er Kótilettukvöld Samhjálpar fastur viðburður í félagslífinu. Þar er boðið upp á góðan mat og frábæran félagsskap og ekki skemmir að með því að mæta getur þú lagt góðu málefni lið. Að þessu sinni er Kótilettukvöldið haldið þann 21. október svo taktu daginn frá og hafðu partífötin tilbúin.

Hér er hægt að tryggja sér miða: https://tix.is/event/22209/kotilettukvold-samhjalpar-2026