Frábær árangur hlaupara Samhjálpar
Í Reykjavíkurmaraþoninu í ár söfnuðu 19 manns áheitum til styrktar Samhjálp og settu söfnunarmet. Alls söfnuðust 2,5 milljónir sem munu koma sér vel til að efla starfssemi Samhjálpar og hlú að okkar fólki.



Ekki er hægt annað en að dást að fólki sem er tilbúið til að leggja á sig margra mánaða undirbúning og hlaupa marga kílómetra til að vekja athygli á góðu málefni sem stendur hjarta þeirra nærri. Hver og einn hefur auðvitað sínar ástæður fyrir því að velja Samhjálp en flestir hafa reynslu af starfi okkar, annað hvort vegna þess að náinn ættingi hefur fengið aðhlynningu, stuðning eða bata vegna starfs samtakanna eða þeir sjálfir nýtt sér þjónustuna og náð að byggja upp nýtt líf.



Margir eru þaulvanir hlauparar, aðrir byrja nokkrum mánuðum áður en Reykjavíkurmaraþonið fer fram og enn aðrir nokkrum vikum fyrr. Allir eru hins vegar ákveðnir og tilbúnir að gera sitt allra, allra besta. Við, starfsfólk Samhjálpar, erum alltaf jafn agndofa yfir velvild þeirra, óeigingirni og dugnaði. Það var því, líkt og venjulega, gríðarleg stemning í hlaupinu og í hvatningarstöð Samhjálpar. Enn og aftur við þökkum ykkur öllum fyrir ósérhlífni ykkar, vináttu og frábæran árangur. Þið eruð stórkostleg! Vonandi sjáum við ykkur á næsta ári annað hvort á hlaupum eða hvetjandi aðra hlaupara.




