Fréttir

Fattaði að hreyfing er skemmtileg

Harpa Rún Eiríksdóttir er ein margra er gengið hafa inn í Hlaðgerðarkot og orðið fyrir djúpum, varanlegum lífsbreytandi áhrifum. Það eru átta ár síðan hún fór í sína síðustu meðferð og í fyrra fannst henni hún þurfa að endurskoða fleira hvað lífsstílinn varðaði. Hún hreyfði sig lítið og í stað þess að byrja hægt og rólega á gönguferðum setti hún sér það markmið að ganga hundrað sinnum á Úlfarsfell. Eftir að því var náð fór hún að hlaupa, ganga á fjöll og mæta í ræktina og nú gefur hreyfingin henni hugarró og gleði.

Mjög margir tala um að veran í Hlaðgerðarkoti hafi breytt lífi þeirra, að eitthvað alveg sérstakt sé við staðinn og andann þar innandyra. Þú ert í þeim hópi. Getur þú útskýrt hvað það er sem breytist?

„Ég fór í mína síðustu meðferð í Hlaðgerðarkot sumarið 2018. Það eru því átta ár síðan. Það gjörbreytti lífi mínu heldur betur,“ segir hún. „Ég var búin að reyna að ná tökum á þessu í einhver ár og hafði farið oft í meðferð. Það var ekki fyrr en ég kom upp í Hlaðgerðarkot að ég öðlaðist sterka trú. Ég fór af krafti inn í kirkjuna, tók skírn og líf gjörbreyttist.“

Fór 100 sinnum á Úlfarsfell

Harpa Rún vinnur nú í Hlaðgerðarkoti, nýtur þess að miðla af eigin reynslu og rétta hjálparhönd þeim er standa í sömu sporum og hún fyrir átta árum. Nú stendur til að hlaupa 10 km og safna áheitum fyrir Samhjálp í Reykjavíkurmaraþoninu. Ertu vanur hlaupari?

„Ég er ekki í grunninn einhver hlaupari en ég setti mér það markmið í fyrra að ganga hundrað sinnum upp á topp Úlfarsfells árið 2025. Þetta gerði ég af því að ég var svolítið búin að missa tökin lífsstílnum og var alveg hætt að hreyfa mig. Og það tókst. Þegar ég fór í síðustu ferðina mína upp fékk ég fullt af vinkonum mínum með mér og við gerðum svolítið húllumhæ í kringum það en síðan þá hef ég verið óstöðvandi, á fjöllum í ræktinni og að hlaupa. Mér fannst það þess vegna liggja beinast við að taka þátt í Reykjavíkurmaraþoninu núna og styrkja gott málefni í leiðinni.“

Fær mikið út úr útiveru í náttúrunni

Ekki er hægt annað er dást að svona dugnaði, það kostar umtalsvert átak að fara frá því að vera sófakartafla yfir í manneskju sem tekur fjöllin í nefið og hleypur 10 km. Hvers vegna fór hreyfingin að skipta þig svona miklu máli?

„Það kviknaði bara einhver áhugi,“ segir Harpa Rún og hlær við. „Ég fæ bara svo mikið út úr því að vera úti í náttúrunni. Ég tengi saman hreyfinguna og þá ánægju og ég fann hvað mér leið miklu betur fljótlega eftir að ég fór að hreyfa mig. Ég hef svo sem ekki aðra skýringu en þá að ég fattaði að mér finnst þetta bara mjög skemmtilegt.“

Ertu í einhverju hlaupahópi eða ferðu út að hreyfa þig í félagsskap annarra?

„Nei, ég er mjög mikið ein í þessari hreyfingu,“ segir hún. „Ég fer oft með einhverjum vinkonum mínum en mér finnst mjög gott að vera ein á fjöllum. Ég er ekki í neinum hlaupahópi og þegar ég fer út að hlaupa er ég yfirleitt bara ein.“

Einveran skilar Hörpu Rún ákveðinni hugarró og gleði auk þess að styrkja líkamann. En þeir sem vilja  heita á hana og hvetja hana áfram geta farið inn á slóðina: https://www.rmi.is/hlaupastyrkur/hlauparar/22363-harpa-run-eiriksdottir.