EXIT – leið út úr afbrotum

Í nýjasta Samhjálparblaðinu skrifar Eygló Harðardóttir grein um EXIT verkefni sem miðar að því að hjálpa fólki til að finna leiðir út úr afbrotum og byggja upp líf þegar það kemur út úr fangelsi. Í greininni segir Eygló:
„Þegar fólk gengur út úr fangelsi ætti það að vera nýtt upphaf en fyrir marga er það í raun aðeins upphaf nýrrar óvissu.
Hugsum okkur tvo einstaklinga sem eru að losna úr fangelsi. Annar þeirra er kona á þrítugsaldri, í fangelsi vegna umfangsmikils fíkniefnasmygls, með lítið barn sem bíður hennar. Hinn er ungur maður, uppalinn á fósturheimilum, aldrei með fasta vinnu eða þak yfir höfuðið, á sínum fjórða dómi, nú fyrir alvarlegt ofbeldisbrot.
Bæði eiga þau eitthvað sameiginlegt: Þegar þau ganga út um hlið fangelsisins, bíður þeirra of oft brotakennd aðstoð og óljós stuðningur. Oft ekkert eða lélegt húsnæði, takmörkuð samfella í meðferð og endurhæfingu, og litlar tengingar við þjónustu sem gæti stutt þau í að byrja upp á nýtt.
Þetta er ekki saga af vonleysi heldur um vanda sem hægt er að leysa með samstilltu samráði og samstarfi. Það er einmitt það verkefni sem samráðsvettvangurinn EXIT – leið út úr afbrotum er ætlað að takast á við.
Vítahringurinn sem við þurfum að rjúfa
Afbrot hafa djúpstæð áhrif — á þau sem fremja brotin, fjölskyldur þeirra, brotaþola og samfélagið í heild. Rannsóknir sýna að þyngri refsingar einar og sér duga ekki til að rjúfa vítahringinn. Það sem raunverulega virkar er eitthvað allt annað: Samhæfð þjónusta, einstaklingsmiðuð aðstoð og samfelld eftirfylgni yfir þau tímamót þegar einstaklingurinn tekur skrefið út úr fangelsinu og inn í samfélagið að nýju.
Þetta eru tímamót sem geta verið bæði þau erfiðustu og þau mikilvægustu í lífi manneskju. Á fyrstu vikunum og mánuðunum eftir að afplánun lýkur er hættan á endurkomu í afbrot hvað mest. Óvissa um húsnæði, skuldirnar sem bíða, lyfjameðferð sem rofnar, stuðningsnet sem er ekki til staðar — allt þetta þrýstir á. Ef við grípum ekki inn í þegar einstaklingurinn kemur út, þá tekur oft það sama gamla við.
EXIT-verkefnið er svar við þessari áskorun.“

Hún lýsir uppbyggingu EXIT-verkefnisins og þeim starfsferlum sem unnið er að því að þróa. Síðan kemur hún að leiðinni framtíðarsýn og þeirri vinnu sem framundan er og segir:
„EXIT er nýtt verkefni. Við erum að læra að tala saman, læra hvað hver og einn getur gert, skoða hvað aðrir hafa gert sem hefur reynst vel. Það eru hindranir — lagaleg álitamál um upplýsingamiðlun og persónuvernd, spurningar um fjármögnun til lengri tíma, krefjandi samhæfing yfir mörk stofnana – og flestir fundir enda með að ræða húsnæðisvanda þeirra sem fáir vilja fá sem næsta nágranna. Þetta er flókin vinna og enginn heldur því fram að lausnirnar séu einfaldar.
En grunnurinn er til. Samstarfsaðilarnir hafa kvittað undir, samstaðan er til staðar, og það er pólitískur og faglegur vilji til að gera betur.
Þegar kona gengur út um fangelsishliðið með þá ósk eina að sýna barninu sínu að mamma geti lifað öðruvísi lífi — á hún að finna að kerfið sé tilbúið. Að einhver hafi hugað að húsnæði. Að meðferðin haldi áfram. Að einhver þekki nafn hennar og viti hvert hún stefnir.
Það á jafnt við um þann unga mann sem kemur út án húsnæðis, án vinnu og án þess að nokkur bíði. Við vitum hvað bíður ef ekkert breytist. Breytum með EXIT, leið út úr afbrotum.“




