Einstaklega vel heppnað kvöld
Kótilettukvöld Samhjálpar var haldið þann 21. október síðastliðinn og einstaklega vel heppnað. Frábærir tónlistarmenn stigu á svið og leyfðu gestum að njóta hæfileika sinna, fólk sagði frá reynslu sinni af starfi Samhjálpar, Lávarðadeild kokkalandsliðsins bar fram dásamlegan mat, frábærir sjálfboðaliðar sáu um að skreyta salinn og taka af borðum. Bekkurinn var þétt setinn en uppselt var á viðburðinn um mánaðamót september/október. Það hefur aldrei gerst fyrr. Allir fundu fyrir von og samkennd og góðir gestir glöddust saman.







Eins og sjá má af meðfylgjandi myndum var stemningin dásamleg.















