„Ég er til í hvað sem er til að hjálpa Samhjálp“
Ragnar Freyr Ingvarsson er líklega best þekktur sem Læknirinn í eldhúsinu en honum er margt til lista lagt. Fyrir utan að vera listakokkur og góður læknir er hann mannvinur. Samhjálp hefur oft notið góðs af því í gegnum árin og nú síðast þegar Ragnar Freyr bað alla þá sem vildu gleðja hann á fimmtugsafmælinu að láta Samhjálp njóta þess.
Þann 24. febrúar síðastliðinn náðir þú þeim áfanga að verða fimmtugur. Í stað þess að senda ættingjum og vinum afmælisgjafalista baðst þú alla að styrkja Samhjálp. Hvaðan sprettur þessi velvild í garð samtakanna?

„Ég hef lengi verið mjög hrifinn af starfi samtakanna,“ segir Ragnar Freyr. „Ég hef gert mitt besta að lyfta Samhjálp upp á samfélagsmiðlum og beðið fólk að gefa máltíð fyrir stórhátíðisdaga. Ætli velvilji minn í garð samtakanna helgist ekki af því að ég hef unnið á Landspítalanum síðasta áratuginn og því í starfi þar sinnir maður öllum sem sem þangað koma. Þá hittir maður fólk sem glímir við alls konar vandamál, sumir er því miður heimilislausir og glíma við fíknivanda og margvíslegar aðrar áskoranir. Það er óhjákvæmilegt að þá leiði maður hugann að því hvert þetta fólk getur leitað þegar það verður svangt og skortir stuðning. Fljótlega eftir að ég hóf störf á Landspítala var mér sagt frá Samhjálp, þar sem tekið væri á móti öllum opnum örmum og allir gætu komið, fengið skjól og að borða. Mér fannst það svo fallegt að svona staður væri til og fór þess vegna að kynna mér starfsemina.
Fyrir einhverju síðan var ég meira að segja í sambandi við stjórn Samhjálpar til að leita ráða um hvernig ég gæti lagt þeim lið og minna á þennan málstað. Áhuginn dofnaði síður en svo þegar bróðir minn, Kjartan, fór að vinna fyrir Samhjálp. Hann byrjaði fyrir rúmu ári sem sjálfboðaliði og hefur bara vaxið í starfi sínu og er núna rekstrarstjóri kaffistofunnar. Það hefur eflt dálæti mitt á Samhjálp að litli bróðir minn skuli vinna þarna.“
Mætti á Kaffistofuna á Þorláksmessu
Á Þorláksmessu fyrir fjórum árum komu Snædís Eva Sigurðardóttir, eiginkona Ragnars Freys og hann á Kaffistofuna í Borgartúni og hjálpuðu til við að elda og bera fram mat. Margir eru velviljaðir og leggja lið en eru kannski ekki tilbúnir að vera svona virkir.
„Ég hjálpaði eitthvað til við elda en kokkurinn sá um matreiðsluna að mestu,“ segir hann hógvær. „Já, ég hef komið nokkrum sinnum á Kaffistofuna að hjálpa til. Alltof sjaldan reyndar en það stendur kannski til bóta núna þegar maður hefur meiri tíma. Ég til í hvað sem er til að hjálpa Samhjálp. Það eru alveg hreinar línur.“
Ragnar Freyr vísar með ummælum sínum um meiri tíma til þess að honum var nýlega sagt upp á Landspítalanum en það vakti mikla athygli í fjölmiðlum. En hvaðan sprettur sú mikla ástríða og áhugi sem hann hefur á matargerð?
„Það er auðvelt að svara því. Það er frá foreldrum mínum komið. Þau kenndu okkur bræðrunum að elda og sáu til þess að við fengum að elda mat einu sinni í viku. Þá fengum við líka að ráða hvað væri í matinn og við sáum alfarið um innkaupin, elda og ganga frá. Þetta sáði einhverjum fræjum og við höfum báðir síðan þá haft mjög gaman af að elda. Bróðir minn er ekki síður lunkinn kokkur og hann hefur hjálpað mér mjög mikið í gegnum tíðina með öll verkefni sem ég hef tekist á hendur. Hann hefur verið mér innan handar við gerð tveggja ef ekki þriggja matareiðslubóka og verið með mér í öllum sjónvarpsþáttum sem ég hef gert. Hann hefur verið mín hægri hönd og bakhjarl og við höfum brallað margt saman.“
Ferðast eiginlega bara til að borða
Í hér um bil tvo áratugi hefur Ragnar Freyr haldið úti líflegu bloggi um mat og matargerð jafnhliða annasömu starfi læknisins. Bloggið snerist auðvitað að mestu um mat en með slæddist fróðleikur um margt er tengist mat og hráefnum og ekki síður lífsstíl.
„Ég er með síðu bæði á Instagram og facebook svo var ég með blogg en það hefur ekki verið mjög virkt síðustu tvö til þrjú árin,“ segir hann. „Allt er þarna ennþá og fólk getur skoðað.“
Margir mataráhugamenn gera einmitt það, finna uppskriftir og fá hugmyndir.
„Þetta var sett upp í svolitlu dagbókarformi,“ segir Ragnar Freyr, „og var gríðarlega stór partur af lífi mínum í ábyggilega fimmtán ár. Ég byrjaði með þetta árið 2006 og var mjög virkur fyrstu árin og póstaði vikulegum pistlum en síðustu ár hef ég verið frekar latur en mjög virkur á Instagram í staðinn.“
Hann er nýkominn heim frá Ítalíu og ferðinni voru gerð góð skil á Instagram en sá reikningur er samtengdur facebook-reikningnum hans svo allir sem fylgja honum þar geta séð ótal skemmtilegar matarmyndir. Það er nokkuð augljóst að matur og matarupplifun er stór hluti þínum ferðalögum.
„Jesús minn, já ég ferðast nánast bara til að borða,“ segir hann og brosir við en öllu gamni fylgir nokkur alvara.
Læknirinn hefur auðvitað líka áhuga á og áhyggjur af heilsufari fólks. Sameinast á einhvern hátt áhugi þinn á mat og læknisstarfið?
„Ég er ekki beint að beita mat sem meðali en ég reyni að hvetja fólk til að elda allan sinn mat frá grunni. Ég held að matur sem maður eldar sjálfur sé alltaf hollari en það sem keypt er tilbúið. Maður veit þá alla vega hvað fer í matinn og ég hef alltaf líka hvatt fólk til að elda hollan mat. En ég er líka syndaselur og leyfi mér ýmislegt,“ segir Ragnar Freyr að lokm en þess má geta að margir bæði vinir, vandamenn og Læknafélag Íslands styrktu Samhjálp rausnarlega.




