Ástríkur bangsi leggur Samhjálp lið
Nýlega barst Samhjálp veglegur styrkur frá Styrktarsjóði Ástríks Jónssonar Steindórssonar. Þetta er í annað sinn sem Ástríkur styrkir Samhjálp en í fyrra kynntumst við þessum kærleiksbangsa og feðrum hans betur. Auðvitað var það nafnið sem vakti athygli starfsmanna skrifstofunnar og okkur fannst forvitnilegt að vita hver stæði að baki sjóðnum sem hafði sent þennan rausnarlega styrk.
Steindór Ívarsson og Jón Sigurðsson eiginmaður hans eru eigendur Ástríks. Hann er lítill kóalabjörn en Steindór færði Jóni hann eftir eina af mörgum ferðum sínum utanlands í byrjun sambands þeirra. Parið á ekki börn en Ástríkur varð þeim mikilvægur og þeir gáfu honum vægi og merkingu.
„Ástríkur er lítill kóala bangsi sem ég gaf eiginmanni mínum, Jóni Sigurðssyni, þegar við vorum að kynnast rétt fyrir síðustu aldamót, því ég dvaldi mikið erlendis á þeim tíma,“ segir hann. „Við eigum ekki börn en Ástríkur öðlast smátt og smátt sitt eigið líf og er elskaður og dáður í okkar vinahópi og fjölskyldu. Árið 2012 ákváðum við að hætta að þiggja og gefa afmælis- og jólagjafir. Í stað þess stofnuðum við styrktarsjóðs í nafni Ástríks. Á hverju ári leggjum við inn á styrktarsjóðinn þá fjárhæð sem annars myndi fara í jóla- og afmælisgjafir. Sumir af okkar ættingjum hafa fylgt fordæmi okkar og leggja inn á sjóðinn. Á afmælisdegi Ástríks, 24. september ár hvert tökum við upphæðina út og styrkjum eitthvert gott málefni,“ sagði Steindór í fyrra.
Og Ástríkur slær ekki slöku við. Hann hélt áfram að safna og þegar kom að afmælisdeginum varð Samhjálp aftur fyrir valinu.
„Af mikilli ánægju hefur Ástríkur úthlutað Samhjálp úr styrktarsjóðnum sínum þetta árið. Hann veit að peningarnir fara á góðan stað og þakkar ykkur fyrir ykkar mikivæga starf,“ segir Stiendór og við hjá Samhjálp þökkum litla kærleiksbirninum og öllum sem hafa lagt honum lið kærlega fyrir okkur. Ef aðrir vilja taka þátt í þessu góða starfi og styrkja sjóðinn hans Ástríks geta þeir lagt inn á:
Styrktarsjóður Ástríks Jónssonar Steindórssonar
Kennitala : 590712-0430
Reikningur: 0370 – 22 – 030478




