Alltaf vakandi fyrir tækifærum til að styrkja Kaffistofuna
Kaffistofa Samhjálpar hefur frá stofnun reitt sig á stuðning og velvild almennings til að halda starfinu gangandi og svo vel vill til að fjölmargir eru tilbúnir að sýna í verki hve mikils þeir meta starfssemina. Í þeim hópi eru Einar D. G. Gunnlaugsson og kona hans Þóra M. Sigurðardóttir. Þau hafa lengi selt heimatilbúnar sælkeravörur, myndlistarverk og handunnar prjónavörur á markaði í Grímsborgum til að safna fé fyrir Kaffistofuna en nú bæta þau við nýrri leið.
Einar er tækniteiknari að mennt en hefur einnig yndi af að teikna og mála. Vatnslitamyndir hans og kort gerð eftir þeim voru meðal þess sem þau buðu til sölu í Grímsborgum en að þessu sinni ákvað hann að hanna auglýsingu í tölvunni og setja inn á facebook með leyfi Samhjálpar. Þið hjónin hafið lengi verið drjúgir stuðningsmenn Kaffistofu Samhjálpar, hvers vegna ákvaðstu í þetta sinn að setja saman auglýsingu?
„Ástæðan er einföld,“ segir hann, „við gerum okkur vel grein fyrir því mikilvæga starfi sem unnið er á vegum Kaffistofunnar fyrir þeim mikla fjölda skjólstæðinga hennar og þetta kallar á gríðarlegan kostnað. Þess vegna reynum við eftir megni að vekja athygli almennings á þörfinni fyrir því að styrkja Samhjálp.“

Selja heimabakstur, sultur og fleira
Þið voruð lengi með markað í Grímsborgum og selduð handunnar vörur til styrktar samtökunum. Eruð þið enn með bás þar?
„Já við höfum verið undanfarin ár verið með markað í Þjónustumiðstöðinni í Hraunborgum á laugardögum á sumrin og endum svo markaðsvinnuna okkar með því að vera með sölubás á Grímsævintýrum á Borg í Grímsnesi sem haldin var þetta árið 22. ágúst síðastliðinn. Þar seljum við heimabakstur, sultur, prjónavörur og póstkort með vatnslitamyndunum mínum. Salan hefur ávallt gengið vel og hluti ágóðans rennur ávallt til Samhjálpar.“
Einar og Þóra leggja mikið á sig til að afla fjár fyrir Kaffistofuna því þau rækta við heimili sitt í Grímsnesinu margs konar grænmeti og nytjajurtir og afurðirnar eru soðnar niður eða sýrðar. Þau tína líka ber og sjóða gómsætar sultur, baka brauð og Þóra prjónar meðan Einar málar fugla, blóm, kirkjur og landslag. Þið hafið sannarlega ávallt lagt ykkar að mörkum á persónulegum nótum og þessi auglýsing er það ekki síður. Hvaðan fékkstu innblástur að henni?
„Við erum lengi búin að velta því fyrir okkur hvernig við gætum komið á framfæri við almenning þörfini á að styrkja starfsemi Samhjálpar,“ segir Einar. „Svo gerðist það fyrir 1-2 árum að við erum að fara með bakkelsi og fatnað í Kaffitofuna, og þá urðum við bæði fyrir miklu áfalli en í portinu fyrir framan innganginn í Kaffistofuna var töluvert af ungu ásamt vel fullorðnu fólki að berja sig til hita á meðan það beið eftir að Kaffistofan opnaði. Þetta var frostkaldan morgun í nóvember. Við fengum fregnir af því frá starfsfólkinu að sumt af þessu blessaða fólki væri á götunni, sem er hræðileg staðreynd. Ég fékk síðan af og til hugmyndir sem lýstu þessu ástandi að einhverju leyti. Ég vann síðan texta og myndlýsingu í auglýsinguna og fékk aðtoð gervigreindarinnar við að setja auglýsinguna upp.“
Viðbrögðin eingöngu jákvæð

Hefur þú fengið viðbrögð við auglýsingunni?
„Já og eingöngu frábær. Ég læt ávallt mína nánustu yfirfara auglýsingar sem ég geri og nú er hún komin í umferð á Facbooksíðunni minni. Ég fæ eingöngu jákvæð viðbrögð og fólk deilir auglýsingunni sem er bara af hinu góða.“
Þóra er bakaradóttir og sér um allan bakstur fyrir markaðinn og Kaffistofan hefur einnig notið þess því iðulega þegar hún bakar er bætt við aukakökum, brauði eða öðru ljúfmeti og farið með á Kaffistofuna. Þau hafa reynst betri en enginn og starfsfólk Samhjálpar kann sannarlega að meta svo öfluga liðsmenn.

„Við hjónin höfum alla tíð reynt að styrkja þau félög og samtök sem okkur hefur fundist vanta fjárhagslega aðstoð. En einhverju sinni komst ég að því að vinur minn til margra ára Georg Viðar Björnsson heitinn hafði verið frumkvöðull að stofnun Samhjálpar árið 1971 eftir dvöl í Svíþjóð þar sem hann hafði farið í áfengis- og vímuefnameðferð hjá LP Stiftelsen. Við tveir vorum hluti af svokölluðum Breiðavíkurdrengjum en þar vorum við 1958-1960 sá tími var okkur báðum gríðarlega erfiður. Við Þóra höfum líka keypt heita máltíð mánaðarlega á Kaffistofunni, fært þeim ýmiskonar bakstur og safnað fatnaði til dreifingar meðal gesta. Við höfum fylgst með starfsfólki Kaffistofunar með aðdáun,“ segir Einar að lokum.




