Samhjálp leitar að bílstjóra í sumarafleysingar frá 10. júlí til og með 11.ágúst.
Unnið er frá kl. 9:00 til 14:30 alla virka daga. Bíllinn er gerður út frá Kaffistofu Samhjálpar í Borgartúni 1a.
Helstu verkefni og ábyrgð
Sækja vörur í ýmis fyrirtæki á höfuðborgarsvæðinu.
Aðstoð á Kaffistofu Samhjálpar
Aðrar tilfallandi sendiferðir
Menntunar- og hæfniskröfur
Hafa reynslu af útkeyrslu
Vera 25 ára eða eldri
Hafa almenn ökuréttindi
Hafa til að bera jákvæðni, þjónustulund, sveigjanleika, stundvísi og sýna sjálfstæð og öguð vinnubrögð
Vera reyklaus
Hreint sakavottorð áskilið
Hafa góða líkamlega heilsu
Vera íslensku- og enskumælandi