Skip to main content

Samtökin Samhjálp voru stofnuð á fimmtugsafmæli Einars J. Gíslasonar 31. janúar 1973 og afmælisgjafir hans gerðu stofnendum kleift að hefja uppbyggingu öflugs hjálparstarfs. Í ár urðu samtökin fimmtíu ára rétt eins og Þorsteinn Guðmundsson. Það snerti því streng í hjarta velunnara samtakanna þegar hann ákvað að biðja alla þá sem ætluðu að gleðja hann á afmælisdaginn að styrkja Samhjálp í stað þess að færa honum eitthvað.

Þorsteinn bað vini sína og vandamenn að leggja inn á reikning Samhjálpar og allir brugðust vel við en hvers vegna ákvað hann að fara þessa leið?

„Ég fór að velta fyrir mér hvað ég myndi fá í afmælisgjöf. Ég er mjög heppinn maður og á allt sem ég þarf svo ég ákvað að deila með mér því sem fólk væri tilbúið að gefa mér. Ég ákvað að láta það frekar renna til góðs málefnis. Fyrir mér vakti að að láta eitthvað gott af mér leiða. Fólk færði mér auðvitað einhverjar gjafir líka,“ segir Þorsteinn.

En hvers vegna varð Samhjálp fyrir valinu?

„Ég þekki til starfsins og hef verið að styrkja samtökin í gegnum tíðina með framlögum frá fyrirtækinu mínu. Ég vildi velja starfsemi sem ég þekkti eitthvað og í raun er varla til verðugra málefni en það að gefa fólki að borða sem ekki hefur efni á að kaupa sér mat. Allir þurfa að borða.“

Drjúgur styrkur

Á afmælisdag Einars söfnuðust 122.000 kr. og næstu vikur og mánuði á eftir bættist við upphæðina. Hún varð þegar allt var talið 400.000 kr. og það dugði fyrir útborguninni þegar Hlaðgerðarkot var keypt. En veit Þorsteinn hversu mikið safnaðist hjá honum?

„Upphæðin er eitthvað á milli 200.000 – 300.000 kr.,“ segir hann. „Á afmælisdaginn sjálfan, laugardaginn 15. apríl söfnuðust 130.000 en síðan hefur verið að bætast við. Ég hef haldið þessu gangandi gegnum facebook og veit um minnsta kosti þrjá sem hafa gefið 25.000 kr. nýverið. Það skiptir mig auðvitað engu máli hvað hver og einn gefur mikið aðalatriðið er að úr því verða til nokkrar máltíðir.“

Fjármálastjóri Samhjálpar staðfesti að þetta væri rétt tilfinning hjá Þorsteini og upphæðin væri komin yfir 200.000 kr. En ekki má gleyma að auk þess að afla umtalsverðs fjár fyrir samtökin hefur Þorsteinn með framtaki sínu vakið athygli á starfi þeirra. Margir sem áður vissu lítið eða ekkert um hlutverk Samhjálpar vita núna af meðferðarstarfi samtakanna í Hlaðgerðarkoti og á þremur áfangaheimilum á höfuðborgarsvæðinu. Þekkja að á Kaffistofa Samhjálpar leita allt að 300 einstaklingar í neyð daglega og fá heitan mat, skjól og hlýju alla daga ársins. En aftur á að Þorsteini. Hvernig var svo afmælisdagurinn hjá manninum sem lét aðra njóta afmælisgjafanna? „Hann var æðislegur,“ segir hann. „Það komu milli níutíu og hundrað manns. Ég hélt þetta heima hjá mér og var umvafinn mínu besta fólki.“

Þorsteinn er matreiðslumeistari og rekur veitingastaðinn Old Iceland á Laugavegi. Hann skilur því vel þörfina fyrir að fá að góðan, næringarríkan mat daglega og njóta þess að borða hann í félagsskap annarra. Við hjá Samhjálp erum hins vegar einlæglega þakklát honum fyrir örlætið og drenglyndið