Hjónin, Natalie T. Narvaéz Antonsdóttir og Þórir Kjartansson hafa ákveðið að hlaupa fyrir Samhjálp í Reykjavíkurmaraþoninu. Þau oru í áhrifamiklu forsíðuviðtali í páskablaði Samhjálparblaðsins þar sem þau sögðu meðal annars frá því þegar alvarlegt vinnuslys varð til þess að Þórir lamaðist um tíma og hann var lengi að ná sér.
„Þetta hefur ekki alltaf verið dans á rósum. Fyrir tveimur og hálfu ári lenti ég í rosalegu vinnuslysi. Ég féll niður um tvo og hálfan metra af stillans í Ráðhúsinu og var fluttur á gjörgæslu. Það var tvísýnt í byrjun hvort ég hefði lamast eða ekki því ég missti allan mátt í fótunum. Lá á gjörgæslu og gat ekki hreyft mig. Natalie og Sandra systir hennar komu upp á gjörgæslu og Natalie fékk rétt að hitta mig, ég gat ekki hreyft mig né talað við hana. Til mikillar blessunar fékk ég mátt í fæturna aftur daginn eftir, en mikið hafði verið beðið fyrir mér bæði hjá Samhjálp, í kirkjunum og á sjúkrahúsinu þar sem Natalie bað fyrir mér. Ég stóð bara upp daginn eftir. Ég hafði fengið svona rosalegt mænusjokk. Taugarnar höfðu lamast við sjokkið,“ sagði Þórir í viðtalinu.
Um tíma var óvíst hvort af slysinu hlytist varanleg örorka eða hvort Þórir yrði vinnufær aftur. Hann er nú kominn aftur til vinnu og með fádæma dugnaði, atorku og samstöðu hafa hjónin náð að vinna sig frá erfiðleikunum. Auk þessa eiga þau hjónin að baki magnaða sögu og þeim tókst að leggja að baki myrkur og vanlíðan en hana má lesa í páskablaði Samhjálparblaðsins. En þið getið styrkt þau og lagt Samhjálp lið gegnum slóðina: https://www.rmi.is/hlaupastyrkur/godgerdamal/416-samhjalp+
Við þökkum Natalie og Þórir þeirra ómetanlega framtak og hér má nálgast viðtalið við þau í heild: https://samhjalp.is/wp-content/uploads/2023/03/Paskablad_2023_web-1.pdf