Skip to main content

Svala Jónsdóttir innhússarkitekt er vel meðvituð um hversu miklu það skiptir að hafa notalegt í kringum sig. Hún hefur einnig lengi haft áhuga á leiðum til að gera manngert umhverfi vistvænna og veitt bæði byggingaverktökum og einkaaðilum ráðgjöf á því sviði. Við leituðum til hennar um góð ráð til að skapa umhverfi sem ýtir undir og viðheldur andlegri vellíðan.

Veistu til þess að einhverjar rannsóknir styðji það að umhverfi innanhúss hafi áhrif á líðan fólks?

„Já, það eru til rannsóknir sem sýna fram á að loftgæði, birtustig, hljóðvist, efnisval og litir hafa áhrif á líðan fólks innanhúss,“ segir Svala. „Við verjum 90% af tíma okkar hér á jörðinni innanhúss, heima hjá okkur, í vinnu eða skóla, og hafa þessi atriði sem ég taldi upp áhrif á bæði líkamlega og andlega heilsu. Þess vegna er alltaf meira og meira verið að nota umhverfisvottunarkerfi eins og t.d. Svansvottun húsa þar sem gerðar eru kröfur um góðar rakavarnir, birtumagn og loftgæði og ýmis heilsuspillandi efni í byggingarefnum eru ekki leyfileg. Það er hlutverk okkar innanhússarkitekta og innanhússhönnuða að búa til mismunandi stemningu innanhúss hverju sinni en minnka á sama tíma umhverfis- og heilsuspillandi áhrif.“

Eru einhverjir litir til að mynda betri þegar kemur að því að ýta undir vellíðan?

„Þetta er mjög persónubundið þegar kemur að litum en sumum finnst til dæmis róandi að koma inn í umhverfi þar sem nánast allt er í dökkum litum á meðan aðrir vilja hafa ljósari liti og náttúrulegt yfirbragð. Sumir vilja dökk svefnherbergi til að líða betur á svefntíma en öðrum er alveg öfugt farið þannig að það er ekkert rétt í þessu. En þú kannski notar ekki skæra liti í rými þar sem á að vera ró og friður heldur notar dempaða litapallettu.“

„Það er hlutverk okkar innanhússarkitekta og innanhússhönnuða að búa til mismunandi stemningu innanhúss hverju sinni en minnka á sama tíma umhverfis- og heilsuspillandi áhrif.“

Skipuleggur vinnuaðstöðuna að morgni

Getur óreiða eða slæmt skipulag rýma haft áhrif á fólk?

„Já, ég hugsa að það séu allir sammála því að of mikið af dóti og hlutum sem eiga sér kannski engan stað getur skapað óeirð í hugum fólks sem notar rýmið. Ég vinn til dæmis betur ef ég er ekki með skrifborðið hjá mér í mikilli óreiðu, þannig að ég byrja alltaf daginn á að skipuleggja vinnuaðstöðuna. Það sama á við um heimili fólks; ef þau eru illa skipulögð og hlutir eiga sér engan stað byrjar maður oft að færa hluti á milli staða,“ segir hún.

Hverju myndir þú mæla með að fólk hafi í huga þegar það innréttar, vilji það ýta undir andlega vellíðan?

„Ég mæli með að leita til fagaðila þegar fólk innréttar heimili sín eða vinnurými. Húsnæði er oft stærsta fjárfesting fólks á ævinni og það getur margborgað sig að fá aðstoð við að útfæra heimili og vinnustaði til að ná fram því sem það vill og á sama tíma huga að umhverfis- og heilsufarslegum þáttum þegar kemur að efnisvali og hönnun. Þá komum við aftur að birtumagni, loftgæðum, hljóðvist, vistvænu efnisvali og svo framvegis. Það er til dæmis hægt að nota gagnabanka vistvænna byggingarvara www.vistbok.is til þess að finna vörur sem eru með umhverfisvottun eða eru ekki eins heilsuspillandi og önnur, en ég er annar stofnenda þessa verkefnis og hef verið að þróa síðan 2019. Markmiðið er að koma öllum umhverfisvænni byggingarvörum á einn stað fyrir bæði almenning og fagaðila,“ segir Svala að lokum.

Mynd: Þórkatla Sif Albertsdóttir