Skip to main content

Lykill fjármögnun hefur látið Samhjálp í té nýja Renault Traffic háþekju frá bílaumboðinu BL ehf. sem mun nýtast samtökunum við ýmiss konar flutninga í margháttaðri starfsemi þeirra. Samhjálp rekur meðferðarheimili, áfangahús, nytjamarkað, göngudeild og Kaffistofuna fyrir þá sem minna mega sín.

Innilega þakklát

Vörður Leví Traustason, framkvæmdastjóri Samhjálpar, segist þakklátur fyrir þann mikla og góða stuðning sem í því felst að fá nýjan bíl til umráða. „Þetta léttir verulega undir með okkur við að hjálpa þeim sem þurfandi eru og minna mega sín í þjóðfélaginu,“ segir Vörður. „Bíllinn verður nær eingöngu notaður við mataröflun fyrir Kaffistofu Samhjálpar og þau úrræði sem Samhjálp rekur. Við þökkum fyrir hlýjan hug og vináttu við Samhjálp.“

„Við höfum um árabil styrkt starfsemi Samhjálpar,“ segir Lilja Dóra Halldórsdóttir, forstjóri Lýsingar, sem Lykill er hluti af. „Það er okkur mikil ánægja að geta stutt við bakið á samtökunum með þeim hætti sem þau óskuðu eftir þegar gamli bíllinn þeirra hafði þjónað út sinn tíma.“ Samkvæmt styrktarsamningi mun Lykill veita Samhjálp grundvallarþjónustu við rekstur bifreiðarinnar í samræmi við flotaleigusamninga fyrirtækisins. Þess ber og að geta að Atlantsolía og Löður munu styrkja samtökin við að reka bifreiðina.