
Hlaðgerðarkot í Mosfellsdal.
|
|
Samhjálp hefir rekið meðferðarheimili að Hlaðgerðarkoti
í Mosfellsdal frá árinu 1973. Þar eru rúm fyrir 34 einstaklinga. Legudagar
í Hlaðgerðarkoti eru á bilinu 10 og 11 þúsund á ári.
Hér er hægt að nálgast ýtarlegar upplýsingar um Hlaðgerðarkot, m.a. um
uppbyggingu meðferðarstarfsins,
ýmsan sögulegan fróðleik um
staðinn og nánasta umhverfi hans svo og ljósmyndir úr myndasafni
staðarins. Þá er hér að neðan að finna forsögu þess að Hvítasunnukirkjan
festi kaup á Hlaðgerðarkoti.
Upphafið
Samhjálp keypti Hlaðgerðarkot af Mæðrastyrksnefnd árið 1973 og hóf þegar
í stað rekstur vistheimilis fyrir áfengissjúklinga. Reksturinn var greiddur
með daggjöldum Tryggingastofnunar ríkisins í fjöldamörg ár en var settur
á föst fjárlög ríkisins eftir að heimilið breyttist í afeitrunar- og meðferðarstöð.
Heimsóknir heilbrigðisráðherra
Hlaðgerðarkot heyrir undir Heilbrigðisráðuneytið
sem hefur eftirlit með starfseminni. Tveir ráðherrar heilbrigðismála
hafa heimsótt Hlaðgerðarkot í ráðherratíð
sinni. Jón Kristjánsson, heimsótti Hlaðgerðarkot
þann 20 mars 2003, ásamt Magnúsi Skúlasyni
deildarstjóra. Þeir Jón og Magnús skoðuðu
húsakynni stofnunarinnar og litu á aðstæður
allar. Var þeim einnig kynnt þau áform sem uppi eru
um að endurbyggja elsta húsið, en það verkefni
er mjög brýnt. Ingibjörg Pálmadóttir fyrrum
ráðherra heimsótti einnig Hlaðgerðarkot í
ráðherratíð sinni. Einnin heimsótti Guðlaugur
Þórðarson, núverandi ráðherra, Hlaðgerðarkot
er hann starfaði sem borgarfulltrúi.
Endurbyggingin
Eitt brýnasta verkefni Samhjálpar í Hlaðgerðarkoti á næstu misserum verður
að ljúka við endurbyggingu gamla hússins, sem byggt var á tímum síðari
heimsstyrjaldarinnar. Fyrsta hluta endurbyggingarinnar er lokið, en ekki
verður öllu lengur hægt að skjóta á frest öðrum hluta. Opinbert fé til
þessa verkefnis hefir ekki fengist ennþá og varð Samhjálp að kosta fyrsta
hluta endurbyggingarinnar að mestu með sjálfsaflafé.
Niðurskurður
Sem kunnugt er bitnaði niðurskurður í heilbrigðiskerfinu 1994 á rekstri
Hlaðgerðarkots eins og annarra áfengisstofnana. Varð Samhjálp að fækka
legurýmum og draga úr starfseminni nokkuð til þess að mæta niðurskurðinum.
Var legurýmum fækkað úr 30 í 25. Niðurskurðurinn hefir ekki fengist leiðréttur.
[Til baka]