Orð





  Untitled Document
Styrkir til starfsins
Á síðustu vikum hafa ýmsir sýnt velvilja sinn í verki og rétt okkur hjálparhönd. Ef ekki væri fyrir velvilja- og hjálpsemi fólks, væri okkur ókleyft að sinna því hjálparstarfi sem Samhjálp sinnir. Í vikunni komu til okkar þær Gyða Vigfúsdóttir og Herdís Rós Kjartansdóttir, starfsmenn leikskólans Reykjakot og færðu okkur 60 húfur sem við munum dreifa til utangarðsfólks og þeirra sem minna mega sín. Ýmsir aðrir hafa á síðustu vikum rétt okkur hjálparhönd, m.a. Hvítasunnukirkjan Fíladelfía sem gaf 6 milljónir af söfnunarfé jólatónleika kirkjunnar, aðrir voru í stafrófsröð:

Dómkirkjan,
Efla, verkfræðistofa,
Efling, stéttarfélag,
Félagsmálaráðuneytið,
Heilaheill,
Kaninn, útvarpsstöð,
Lionsklúbburinn Þór,
Líknarsjóður Lögreglunnar,
Seafood Union,
Soroptimistaklúbbur Hóla- og Fella,
Vélhjólaklúbburinn Kerúbar, Sober Riders o.fl.


Við þökkum öllu því góða fólki sem með þessum hætti hefur á fórnfúsan hátt rétt hjálparhönd til þeirra sem minna mega sín og óskum þeim og fjölskyldum þeirra, Guðs blessunar og framgangs í leik og starfi.
Heiðar Guðnason framkvæmdastjóri | 22. janúar 2010
 

[Til baka]


  UPP

© 2002-2009.  Samhjálp, Stangarhyl 3A, 110 Reykjavík, sími 561 1000.
Afgreiðslutími skrifstofu er alla virka daga á milli kl. 09 og 15.
Ábyrgðarmaður: Heiðar Guðnason framkvæmdastjóri [
heidar@samhjalp.is ]
Vefstjóri: Kristinn Pétur[
kristinn@samhjalp.is ]
Allur réttur áskilinn.