top of page


Ný í stjórn Samhjálpar
Aðalfundur Samhjálpar var haldin í húsnæði Fíladelfíukirkjunnar í Hátúni í gær og þar voru kosin ný í stjórn Samhjálpar Helga Þórinsdóttir læknir og Davíð Örn Sveinbjörnsson lögfræðingur. Þau taka við af Helgu Lind Pálsdóttur og Dóru Vigdísi Vigfúsdóttur er báðar óskuðu eftir að láta af setu í stjórn vegna óviðráðanlegra aðstæðna. Stjórn og starfsfólk Samhjálpar þakkar Helgu Lind og Dóru Vigdísi innilega fyrir þeirra störf og býður nýtt stjórnarfólk velkomið til starfa.
2 days ago


Við minnum á aðalfund Samhjálpar
Aðalfundur Samhjálpar fer fram 21. apríl klukkan 17:00 í húsnæði Fíladelfíu Hátúni 2, Reykjavík. Dagskrá fundar er eftirfarandi: Kosning fundarstjóra og fundarritara Skýrsla stjórnar Starfsskýrsla undanfarins árs Reikningar lagðir fram til samþykktar Kjör til stjórnar Kosning um endurskoðanda Starfsáætlun 2026 Önnur mál Aðalfundur Samhjálpar fer fram 21. apríl klukkan 17:00 í húsnæði Fíladelfíu Hátúni 2, Reykjavík.
Apr 15


Fólk nær að lyfta grettistaki
Fjölmargir skjólstæðingar Samhjálpar hafa náð góðum árangri í að byggja upp líf sitt að nýju eftir að hafa tekið þátt í endurhæfingarúrræðinu Grettistaki. Um er að ræða úrræði á vegum velferðarsviðs Reykjavíkurborgar og markmið þess er að auka hæfni einstaklinga til að takast á við daglegt líf, hvort sem er í námi eða vinnu. Elín Guðjónsdóttir félagsráðgjafi er verkefnastjóri Grettistaks og hún var beðin að lýsa því hvernig úrræðið væri uppbyggt. „Grettistakið
Apr 14


„Tónlistin bjargaði mér“
Elvar Bragason fór brotinn út í lífið. Hann var lagður í einelti alla grunnskólagönguna heima á Húsavík og leið alltaf illa. Hann gat ekki talað um líðan sína við neinn en þegar hann kynntist áfengi, þrettán ára gamall, gaf það lausn frá vanlíðaninni um stund. Elvar þróaði með sér fíkn og reyndi oft að ná tökum á sjúkdómnum án þess að ná árangri. Árið 2003 varð vendipunktur í lífi hans en þá gekk hann inn í Hlaðgerðarkot og fann leið til að fy
Apr 13


Aðalfundur Samhjálpar
Aðalfundur Samhjálpar fer fram 21. apríl klukkan 17:00 í húsnæði Fíladelfíu Hátúni 2, Reykjavík. Dagskrá fundar er eftirfarandi: Kosning fundarstjóra og fundarritara Skýrsla stjórnar Starfsskýrsla undanfarins árs Reikningar lagðir fram til samþykktar Kjör til stjórnar Kosning um endurskoðanda Starfsáætlun 2026 Önnur mál Aðalfundur Samhjálpar fer fram 21. apríl klukkan 17:00 í húsnæði Fíladelfíu Hátúni 2, Reykjavík.
Apr 1


Mannauður Kaffistofunnar í nýju Samhjálparblað
Samhjálparblaðið er komið út. Að þessu sinni er mannauður Kaffistofunnar í forgrunni og viðtöl við hluta starfsfólksins mynda forsíðuumfjöllun blaðsins. Að auki er viðtal við Elvar Bragason stofnanda Tónasmiðjunnar. Hann fór brotinn út í lífið eftir langvarandi einelti í heimabæ hans Húsavík en tókst að finna frelsi í trúnni og tónlistinni. Hann hjálpar nú öðrum að finna sína leið að lífshamingjunni. Guðmundur Ingi Þóroddsson skrifar áhrifamikla hugvekju um líðan manneskju í
Mar 31


Nýtt upphaf Kaffistofu Samhjálpar styrkt
Samhjálp var í hópi þeirra samtaka er hluti rekstrarstuðning frá félag- og húsnæðismálaráðuneyti í gær. Styrkurinn er veittur til verkefnisins Kaffistofa Samhjálpar- Nýtt upphaf . Um er að ræða 10.000.000 kr. og mun þetta koma sér vel við uppbyggingu og breytingar á nýju húsnæði Kaffistofunnar. Við hjá Samhjálp eru þakklát fyrir þetta ómetanlega liðsinni og hlökkum til að takast á við verkefnin sem bíða. Í fréttatilkynningu frá félags- og húsnæðismálaráðuneytinu segir Ragnar
Mar 18


Góðar gjafir í Ramadan
Samhjálp fær góðar gjafir víða að og við höfum lengi fundið og vitað að það er sælla að gefa en þiggja. Nýlega barst matargjöf í eldhús Kaffistofunnar frá Sunnudagaskólanum í Reykjavík í tilefni að Ramadan, helgum mánuði múslima og þessi fallega kveðja fylgdi: „Þeir sem gefa ölmusu leynt og ljóst um nætur sem daga, munu taka laun hjà Herra sínum (Guð). Ekkert þurfa þeir að óttast né neitt að harma.“ (Kóraninn 2:275). Við þökkum innilega fyrir gjöfina og kveðjuna.
Mar 11


Aukin áfengisneysla aukið álag á heilbrigðiskerfið
Í nýjasta tölublaði Læknablaðsins er að finna áhugaverða grein eftir Engilbert Sigurðsson, sérfræðing í geðlækningum um niðurstöður nýrrar rannsóknar hans. Þar kemur fram að áfengistengdum innlögnum á Landspítala hefur fjölgað verulega á síðustu árum en nýgengi slíkra innlagna jókst um 88 prósent á árunum 2005 til 2022. Þetta eru váleg tíðindi en algengast var að innlagnirnir væru tengdar geð- og atferlisröskunum vegna áfengisneyslu, þá voru einnig áfengistengdir lifrarsjúkdó
Mar 9


Nýtt meðferðarheimili opnað
Nýlega birtist á vef stjórnarráðsins fréttatilkynning þess efnis að nýtt meðferðarheimili fyrir unglinga hefði opnað í nýju húsnæði í Gunnarsholti. Meðferðarheimilið heitir Lækjarbakki og tók á móti fyrsta barninu þann 6. mars síðastliðinn. Lengi hefur verið beðið eftir fleiri úrræðum fyrir börn í vanda og við hjá Samhjálp fögnum þessum áfanga. Í fréttatilkynningu ríkisstjórnarinnar segir ennfremur: „Opnunin markar mikilvægan áfanga í framhaldsmeðferð fyrir drengi sem glíma v
Mar 9


Húsnæði fyrst
Inni á vef stjórnarráðsins er að finna fréttatilkynningu frá félags- og húsnæðismálaráðherra Ragnari Þór Ingólfssyni. Þar kemur fram að hann hyggst setja stefnu á landsvísu um málefni þeirra sem búa við heimilisleysi eða aðrar óviðunandi húsnæðisaðstæður. Stefnan mun fylgja hugmyndafræðinni um húsnæði fyrst (e. Housing first). Ráðherra tilkynnti þetta á opnum fundi um heimilisleysi sem Húsnæðis- og mannvirkjastofnun stóð fyrir í morgun. Sú stefna hefur reynst vel víða annars
Feb 20


Undir áhrifum – áhrif áfengis á taugakerfi ungmenna
Í páskablaði Samhjálparblaðsins í fyrra birtist grein eftir Dr. Láru G. Sigurðardóttur um áhrif áfengis á taugakerfi ungmenna og gildi þess að koma í veg fyrir að unglingar byrji að drekka. Nú þegar stöðugt auðveldara er að nálgast áfengi á öllum tímum sólarhringsins, að því er virðist, er ástæða til að rifja orð hennar upp: „Ég fékk mér ekki fleiri drykki svo að ég gæti passað upp á þig.“ Þessu ljóstraði æskuvinkona mín upp þar sem við gæddum okkur á þorskhnakka sem eiginmað
Feb 17
bottom of page
