Stjórn Samhjálpar hefur ráðið Valdimar Þór Svavarsson í starf framkvæmdastjóra samtakanna og hóf hann störf þann 1. nóvember sl.
Vegna Kótilettukvöldins mun skrifstofa Samhjálpar loka kl. 12:00 fimmtudaginn 10. október.
Uppselt er á Kótilettukvöldið en við getum bætt við á biðlistann. Allir ógreiddir miðar fara í sölu 10. okt. kl. 10:00
Að venju verður dagskráin á Kótilettukvöldinu stórglæsileg!
Miðarnir eru komnir í sölu!
Sendið tölvupóst á samhjalp@samhjalp.is eða hringið í síma 561-1000 til að tryggja ykkur miða....
See MoreFimmtán hlauparar voru skráðir til leiks fyrir Samhjálp í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka sem fram fór s.l. laugardag og hlupu þessar hetjur allt frá þremur kílómetrum og upp í hálf-maraþon.
Reykjavíkurmaraþon 2019
Nú hafa átta einstaklingar skráð sig til hlaups fyrir Samhjálp í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka 2019
Við færum öllum hlaupurum sem leggja samtökunum lið innilegar þakkir fyrir veittan stuðning og velvild í garð félagsins og óskum öllum hlaupurum góðs gengis. Við hvetjum alla til að fara inn á síðuna hlaupastyrkur.is og sjá hvaða yndislega fólk það er sem ætlar að hlaupa fyrir Samhjálp.
Í dag var enn einum áfanganum náð í enduruppbyggingunni í Hlaðgerðarkoti. Þá komu starfsmenn frá Malbikunarstöðinni Hlaðbær Colas og malbikuðu bílastæðið.
Nú standa yfir framkvæmdir við bílaplanið í Hlaðgerðarkoti en fyrirhugað er að malbika planið eftir páska.
Aðalfundur Samhjálpar verður haldinn 29. apríl kl. 17:00 í Hlíðasmára 14, 3. hæð.
Venjuleg aðalfundarstörf.
Skrifstofa Samhjálpar að Hlíðasmára 14 í Kópavogi, verður lokuð þann 10. apríl n.k. Opnum aftur fimmtudaginn 11. apríl samkvæmt venju kl. 10-15. Hægt verður að senda tölvupóst á netfangið samhjalp@samhjalp.is ef erindið er brýnt.
Biðjumst afsökunar ef þetta kann að valda einhverjum óþægindum.
Oddfellowar í Reykjavík gáfu Hlaðgerðarkoti veglega sófa og stóla til að hafa í setustofu Hlaðgerðarkots.
Laugardaginn 19. janúar kom stjórn Styrktar- og líknarsjóðs Oddfellowreglunnar í Hlaðgerðarkot og afhenti Guðmundur Eiríksson, Stórsír, Verði Leví Traustasyni, framkvæmdarstjóra Samhjálpar, gjafabréf að andvirði 20 milljónir króna sem er ætlað til áframhaldandi uppbyggingar á meðferðarheimilinu.
Barþjónaklúbburinn hélt söfnunarkvöld í aðdraganda jólanna og rann ágóðinn til Samhjálpar.
Þeir Tómas Kristjánsson, formaður Barþjónaklúbbsins, og Grétar Matthíasson, í stjórn klúbbsins, komu á milli jóla og nýárs í heimsókn á skrifstofu samtakanna og afhentu söfnunarféið, alls á þriðja hundruð þúsund krónur.
31. desember 2018 var dregið í hinu árlega og veglega happdrætti Samhjálpar hjá sýslumanni á höfuðborgarsvæðinu.
Þeir Hlynur B. Gunnarsson (t.v.) og Sigurður Jónsson (t.h.) komu og færðu fyrir hönd Oddfelow stúku nr. 1 Ingólfi, Samhjálp veglega gjöf sem hljómar upp á 500.000 kr. styrk.
Við færum þeim okkar bestu þakkir fyrir.
Með þeim á myndinni er Guðmundur G. Sigurbergsson, fjármálastjóri Samhjálpar.
Krónan bað almenning að tilnefna þau góðgerðarsamtök sem þeim fannst að Krónan ætti að styrkja fyrir jólin.
Samhjálp fær styrk frá Ríkisstjórn
RÍKISSTJÓRN ÍSLANDS SAMÞYKKTI Á FUNDI AÐ STYRKJA GÓÐGERÐARSAMTÖK SEM STARFA HÉR Á LANDI Í SAMRÆMI VIÐ ÞÁ HEFÐ SEM SKAPAST HEFUR Á UNDANFÖRNUM ÁRUM Í AÐDRAGANDA JÓLA.
Eldri fréttir
-
Hjálpið okkur að hjálpa öðrum
-
Það kostar ekkert að skrá sig í Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka og hlaupa til styrktar Samhjálp!
-
Samhjálparsamkomur felldar niður
-
Skrifstofa Samhjálpar lokuð fram yfir verslunamannahelgi
-
Samhjálp fær kaffi
-
Hjólað í vinnuna til styrktar Samhjálp
-
Aðalfundur Samhjálpar
-
Hlaðgerðarkot tekur við skjólstæðingum
-
Kaffistofan opin helgina
-
Tilkynning vegna Kaffistofunnar
-
Tilkynning vegna Hlaðgerðarkots
-
Skrifstofa Samhjálpar verður lokuð 13. mars
-
Vegna COVID-19
-
Happdrætti Samhjálpar
-
Þakkarkveðja
-
Rótarýklúbburinn Straumur Hafnarfjörður